Inga Tinna Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri og eigandi Dineout, ferðast mikið og finnst hún alltaf vera komin heim þegar hún kemur til London. Hún mælir með mörgum góðum veitingastöðum í borginni en einnig vel völdum stöðum við Lake Como á Ítalíu, í Kaupmannahöfn, New York og Tókýó.
„Þessar borgir og þessi listi er lítið brotabrot af því sem manni langar að tala um en uppáhalds ferðalögin eru meðal annars til Tókýó, í Karíbahafið, Bahamas, Miami, New York, Boston, Washington, Toronto, Barcelona, Andalúsía á Suður-Spáni, Lake Como og Gardavatnið auk Parísar og fleiri borga. Hér verður stiklað á stóru í nokkrum borgum,“ segir Inga Tinna.
Inga Tinna sem var nýlega í viðtali um ferðalög á ferðavef mbl.is deilir hér með lesendum hvar hún fær besta matinn erlendis.
„Ég fæ besta matinn á Ítalíu, í London og New York án nokkurs vafa. Ég á mér marga uppáhaldsstaði og er búin að koma mér upp rútínu á hverjum stað. Mér finnst fátt skemmtilegra en að uppgötva nýja staði í bland og geri mikið af því að skoða tískublöð, greinar og blogg sem mæla með góðum nýjum stöðum. Ég fylgist líka með í þáttum og bíómyndum og fæ þar kannski hugmyndir að nýjum stöðum til að prófa, ef mér líst svo á,“ segir Inga Tinna.
„London er í miklu uppáhaldi. Mér finnst ég oftast vera komin heim þegar ég kem til London,“ segir Inga Tinna um borgina. Hún segist oftast vera á Covent Garden-svæðinu og gistir þá gjarnan á Radisson Blu Edwardian á Mercer Street. „Ég á svo marga uppáhaldsstaði í London að það væri ritgerð að skrifa um þá alla en til að nefna einhverja þá myndi ég klárlega stikla á stóru með þessum hætti:
Morgunmatur:
● Bill's í Covent Garden.
● Where the pancakes are
Brunch/Lunch:
● Balthazar. Franskur bistró staður sem á uppruna sinn í Soho New York og hefur verið í uppáhaldi hjá mér í fjölda ára. Ég sá hann fyrst í kringum 2008 þegar ég horfði á Sex and the City þættina. Þá fóru þær stöllur á sunnudögum í kampavínsbröns á staðinn. Nú hafa þeir opnað í London líka, alveg við Covent Garden. Staðurinn þar er alveg eins uppsettur eins og staðurinn í New York. Inn af staðnum er geggjað bakarí sem þeir eru líka með.
● The Ivy Market Grill er í Covent Garden og er frábær bæði í lunch og kvöldmat. Kósý umhverfi, fallegt og góður matur.
● Polo lounge – á sumrin.
● The Ritz Restaurant – Ef það á að gera extra vel við sig mæli ég með Michelin-stjörnu staðnum The Ritz Restaurant. Staðurinn er inni á Ritz hótelinu sem er auðvitað í algjörum sérflokki. Þarna þurfa karlar að vera í jakka og með bindi en ekki örvænta, ef þú gleymir bindinu er hægt að leigja slíkt.
● Mews of Mayfair – Falin perla og þar skapast mikil stemmning.“ Elska að fara þangað seinnipartinn, mjótt stræti sem maður þarf aðeins að hafa fyrir að finna ef maður hefur ekki farið áður.
Drykkir og léttur matur með:
● Mews of Mayfair
● St Martins Lane Hotel hótelbarinn.
● Polo Lounge á Dorchester Rooftop – á sumrin. „Geggjaður staður með útsýni yfir Hyde Park og mjög vinsæll hjá stjörnunum. Þar sem LA hittir London.
● Kaffi: „Monmouth möst að prófa.
Kvöldmatur:
● St Martins Lane Hotel – Drykkur á kokteilbarnum (Blind Spot London) sem er frekar falinn inn af hótelinu. Á hótelinu er svo æðislegur veitingastaður til að borða á.
● Mews of Mayfair.
● ROKA – Charlotte street er sushi og japanskur, flottur og góður staður.
● Nobu er líka alltaf klassískur, flottur og góður japanskur.
● La Bodega Negra er geggjaður mexíkóskur staður. Staðurinn er uppáhaldsstaður fyrirsætunnar Kate Moss. Þú labbar inn í kynlífstækjabúð og innst inni í henni er hurð sem þú opnar og við það tekur starfsmaður veitingastaðarins á móti þér. Rétt hjá er svo staður sem heitir Little Italy þar sem er gaman að fara og dansa ef fólk er í fíling fyrir það.
● Abeno Too er japanskur veitingastaður. Staðurinn tekur ekki við borðabókunum og oftast er löng röð en vel þess virði. Þú situr uppi á kössum og ofan í kassana setur þú jakkann þinn og veski. Það er setið við barinn þar sem maturinn er eldaður fyrir framan þig. Þarna er frægur japanskur réttur sem heitir okonomi yaki og fleira svakalega gott. Þarna er ekkert sushi eins og maður tengir oftast við japanska staði. Ég sat eitt sinn ein fyrir jólin og við hliðina á mér sat maður sem pantaði sér rétt sem tók 30 mínútur að elda fyrir framan okkur. Ég spurði hann hvort þetta væri góður réttur. Hann sagði: „Leyfðu mér að útskýra! Ég tók lestina frá París í morgun og kom beint hingað og pantaði þennan rétt. Ég rölti aðeins um og kom svo aftur núna til að panta þennan rétt. Ég tek svo lestina aftur til Parísar í kvöld.“ Þetta var nógu góð ástæða fyrir mig til að prófa réttinn og hann var að sjálfsögðu æðislegur.
● Hakkasan Mayfair. Frábær kínverskur Michelin staður. Sá fyrsti opnaði í London fyrir um 20 árum síðan en hefur nú opnað víðsvegar um heiminn síðan. Algjört ævintýri fyrir bragðlaukana og fallegt umhverfi.
● Ítalskur góður sem ég fór á síðast heitir Manteca og er í Soho, geggjað pasta sem er búið til á staðnum.
● Indverskur. Það er mikið af góðum indverskum stöðum í London. Ef maður vill upplifa hráa en skemmtilega menningu er gata sem heitir Brick Lane sem er með fullt af indverskum stöðum. Staðirnir eru svokallaðir B&B staðir (bring your own bottle) og á hverju götuhorni er verslun sem selur drykki til að taka með á staðina. Minn uppáhalds þar heitir Aladin.
„Það er fjöldi matarmarkaða í London en Borough Market er í uppáhaldi hjá mér. Það er mikið líf, sérstaklega á laugardögum. Þar er ferskt hráefni, grænmeti, ávextir, blóm, ostar, vín og allt sem kitlar bragðlaukana. Tengt því er hægt að prófa skemmtilega uppákomu sem gengur út á það að skrá sig á matreiðslunámskeið tengt markaðnum. Þá er kokkur sem sér um að fara með þér eða hópi fólks á markaðinn og fer svo með allt sem keypt var í eldhús (gervi-heimili) sem eru tileinkuð hópum að elda í. Maturinn er eldaður og svo setjast allir til borðs saman og gæða sér á dýrindismáltíð og hafa gaman. Þarna skrá sig oft pör, einstaklingar eða hópar og fólk getur kynnst öðrum með sama áhugamál.“
„Þvílík paradís í mat og fegurð. Hef farið þó nokkrum sinnum og búin að finna þá staði sem mér finnst frábærir og fer á aftur og aftur. Uppáhalds bærinn minn er Tremezzo og þar eru æðisleg hótel. Ég hef þó líka verið í bæ sem heitir Gravedona og svo bænum Como. Ólíkir en frábærir á sinn hátt:
● Al Veluu – minn allra uppáhalds. Er uppi í fjallshlíð fyrir ofan bæinn Tremezzo. Horfir yfir til Belaggio og útsýnið óborganlegt.
● Ca de Matt er veitingastaður í Gravedona bænum. Mjög sjarmerandi. Það er eins og þú sért að fara í heimahús og þú labbar upp stiga og endar út á stórum svölum. Það er eldri kona sem rekur staðinn og maturinn er æðislegur.
● Cantina Follie - Gengur inn í klett og þarna eru frábærir drykkir og smáréttir í æðislegu umhverfi.
● Vista Palazzo - geggjað í drykk og smárétti
„Ég gæti haldið lengi áfram en læt þetta duga í bili,“ segir Inga Tinna um veitingastaði við Como.
„Mér finnst fátt skemmtilegra en að rölta um í Soho, kíkja í brunch á Balthazar og enda svo kvöldið á geggjuðum veitingastað í góðra vina hópi. Það er erfitt að velja á milli veitingastaða í New York en í gegnum árin hef ég komið mér upp mínum uppáhaldsstöðum, til dæmis Tao downtown, STK, Buddakan, Buddhabar. Momofuku Ko er æðislegur japanskur staður sem ég mæli svo hiklaust með.
Bestu staðirnir láta lítið fyrir sér fara. Þú stendur kannski fyrir utan hurð sem lítur út eins og svört bílskúrshurð, engin merking. Þú opnar hurðina og smátt og smátt tekur á móti þér ævintýraleg veröld. Þakbarir í New York eru æðislegir. Það er einn í uppáhaldi hjá mér sem er á efstu hæðinni á Gansevoort-hótelinu. Þar hefur maður rekist á Kardashian systur en barinn er 360 gráður og breytist í skemmtistað þegar líða tekur á kvöldið. Svo er annar sem er mjög vinsæll og maður horfir beint á Empire State bygginguna. Á veturna fær maður hlýja sloppa til að fara í en þrátt fyrir kuldann er æðislegt að sitja úti, líka á kvöldin. Sá þakbar býður einnig upp á mat og smárétti en hann heitir 230 Fifth,“ segir Inga Tinna.
„Veitingastaðir í Köben eru æðislegir og hafa hækkað í standard umtalsvert síðustu ár. Þar er fjöldinn allur af Michelin-veitingastöðum, æðislegir brönsstaðir, kaffihús og kvöldverðarstaðir. Ég hef farið tvisvar núna með stuttu millibili. Ég prófaði meðal annars Kiin Kiin sem er eini tælenski Michelin-staðurinn í Evrópu. Ég get klárlega mælt með honum. Eins finnst mér Skt. Annæ frábær í síðbúin hádegisverð. Brönsstaðir í uppáhaldi eru Mad og Kaffe ásamt mörgum fleirum.“
„Mér fannst æðislegt að fara á Grand Hyatt-hótelið og þar eru nokkrir veitingastaðir í hæsta gæðaflokki. Ég fór á stað sem heitir Chinaroom þar sem við fjölskyldan vorum að kveðja frænda minn sem var að fara til Kína í nám. Staðurinn var æðislegur og allt upp á 10.
Hótelbarinn á efstu hæð Park Hyatt Tokyo er líka æðislegur og er með útsýni sem gnæfir yfir borgina. Þar var hluti myndarinnar Lost in translation tekinn upp. Þar er hægt að hlusta á lifandi jazz og allt mjög elegant og töff.
Mér fannst líka alveg magnað hvað var í raun erfitt að finna sushi staði. Sushi er aðeins lítill hluti matarmenningarinnar og svo margt í japanskri matargerð sem er mun vinsælla og æðislega gott,“ segir Inga Tinna.