Sóknarfæri á Austurlandi í fiskeldi

Guðmundur Gíslason, framkvæmdastjóri Ice Fish Farm.
Guðmundur Gíslason, framkvæmdastjóri Ice Fish Farm. Mynd / Fiskeldi Austfjarða

Meiri­hluti hlut­hafa Laxa fisk­eld­is ehf. komst í gær að sam­komu­lagi um að greiða at­kvæði með kaup­um norska fé­lags­ins Ice Fish Farm AS á Löx­um en viðræður um mögu­lega yf­ir­töku hóf­ust í sum­ar.

„Þetta er sókn­ar­samruni til að sækja fram og byggja upp það sem hvort fyr­ir­tæki fyr­ir sig hef­ur verið að vinna í og nýta þau tæki­færi sem bjóðast,“ seg­ir Guðmund­ur Gísla­son, for­stjóri Ice Fish Farm, í sam­tali við blaðamann.

Samruni eyk­ur af­kasta­getu

Ice Fish Farm, sem er móður­fé­lag Fisk­eld­is Aust­fjarða, hef­ur verið í miklu sam­starfi við Laxa Fisk­eldi sem elur lax og rek­ur þrjár seiðaeld­is­stöðvar í Ölfusi og sjókvía­eldi í Reyðarf­irði. Sam­an reka fyr­ir­tæk­in laxaslát­ur­hús á Djúpa­vogi með fyr­ir­tæk­inu Bú­landstindi.

Guðmund­ur seg­ir marga kosti fel­ast í sam­einuðum kröft­um fyr­ir­tækj­anna og samrun­inn muni meðal ann­ars leiða af sér aukna yf­ir­sýn, meiri af­kasta­getu og betra skipu­lag, en nú þegar hafi sam­vinna fyr­ir­tækj­anna á Djúpa­vogi borið mik­inn ár­ang­ur.

„Það er mjög mik­il­vægt að geta haft fulla stjórn á öllu ferl­inu og fá að nýta öll tæki­fær­in. [...] Þetta er stór, öfl­ug­ur og fjár­fest­inga­frek­ur iðnaður. Því meira sem við get­um notað af fram­leiðslu­tækj­um, þeim mun öfl­ugri og meiri fram­leiðni næst út úr allri kök­unni.“

Spurður út í mögu­leg­ar hagræðing­ar vegna yf­ir­tök­unn­ar ít­rek­ar Guðmund­ur að um sókn­ar­samruna sé að ræða sem muni leiða til upp­bygg­ing­ar frek­ar en eitt­hvað annað.

„Þetta er sókn­ar­bolti. Við erum að sækja fram og okk­ur vant­ar frek­ar starfs­fólk en að fækka því. Við erum að setja upp fleiri svæði og stækka. Það er sókn í gangi.“

Að sögn Guðmund­ar er nú verið að byggja upp öfl­ug­ar seiðastöðvar sem fram­leiða stór seiði svo hægt sé að koma þeim í sjó­inn á far­sæl­an hátt og stytta eld­is­tíma þar. Á þetta að minnka áhættu og tryggja betri ár­ang­ur.

Nán­ar er fjallað um málið í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: