Keypti einbýlishús án þess að skoða það

Ragnar Freyr Ingvarsson læknir og ástríðukokkur, og eiginkona hans, keyptu einbýlishús í Árbænum án þess að stíga fæti inn í húsið. Þau bjuggu í Svíþjóð á þeim tíma og skyndilega fékk Ragnar Freyr svo mikla heimþrá að hann varð að komast til Íslands.

„Við vorum alveg viss um að þetta væri málið. Sex vikum seinna komum við heim og skoðuðum loksins húsið,“ segir hann. 

Ragar segir að hann vilji hafa heimilið þannig að öllum líði vel. 

Ragnar Freyr gaf út splunkunýja matreiðslubók á dögunum, Heima hjá lækninum í eldhúsinu. Þar töfrar hann fram girnilega rétti sem allir geta matbúið heima hjá sér. 

mbl.is