Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi starfsleyfi vegna aukins sjókvíaeldis Laxa fiskeldis í Reyðarfirði. Er þetta í annað skipti sem leyfi til starfseminnar er fellt úr gildi. Í bæði skiptin er um að kenna mistökum leyfisveitenda ríkisins, að mati úrskurðarnefndarinnar.
Ástæðan fyrir því að úrskurðarnefndin felldi nú úr gildi starfsleyfi Umhverfisstofnunar fyrir 10 þúsund tonna hámarkslífmassa á nýrri staðsetningu Laxa fiskeldis í Reyðarfirði er að stjórnvöld höfðu ekki látið gera umhverfismat fyrir áhættumat erfðablöndunar og burðarþolsmat, hvorki fyrir þetta svæði né önnur.
Umhverfisstofnun og Matvælastofnun veittu Löxum leyfi til að auka eldi sitt með útgáfu leyfa í mars á síðasta ári. Fyrri úrskurðurinn, þar sem rekstrarleyfi var fellt úr gildi, snerti meira stærð seiða sem Matvælastofnun setti ekki á réttan hátt inn í rekstrarleyfi. Úr því var bætt og fengu Laxar nýtt leyfi. Nú er hitt leyfið, starfsleyfið, fellt úr gildi. Það hefur þó aðeins áhrif á hluta aukningarinnar.