Eldislax er í hraðri sókn

Fiskeldi í Ísafjarðardjúpi.
Fiskeldi í Ísafjarðardjúpi. mbl.is/Helgi Bjarnason

Sé litið á eldisaf­urðir þá var út­flutn­ings­verðmæti lax á fisk­veiðiár­inu 2020/​2021 alls 28,4 millj­arðar og hef­ur vaxið hratt á síðustu mánuðum og miss­er­um. Til viðbót­ar þeirri tölu voru flutt út frjóvguð laxa­hrogn fyr­ir tæp­lega 2,4 millj­arða í fyrra, sem fóru að mestu til Bret­lands, Fær­eyja og Nor­egs.

Útflutn­ing­ur á sil­ungi, sem er að lang­stærst­um hluta bleikja, skilaði á síðasta fisk­veiðiári 5,1 millj­arði. Sam­an­lagt skiluðu eldisaf­urðir því hátt í 36 millj­örðum.

Eld­islax er kom­inn í annað sæti hvað varðar út­flutn­ings­verðmæti af þeim fisk­teg­und­um sem flutt­ar eru frá Íslandi. Lík­legt er að hlut­ur lax­ins vaxi enn frek­ar á kom­andi árum. Loðna mun þó vænt­an­lega gefa meiri verðmæti á þessu fisk­veiðiári.

mbl.is
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: