Arna Ýr Jónsdóttir, fegurðardrottning og hjúkrunarfræðinemi, sagði já þegar sambýlismaður hennar Vignir Þór Bollason kírópraktor fór á skeljarnar. Arna Ýr greindi frá gleðitíðindunum á Instagram á aðfangadagskvöld.
Já, aftur og aftur skrifaði Arna Ýr þegar hún birti myndir af hringnum og bónorðinu sem átti sér stað heima í stofu.
Arna Ýr varð þekkt á Íslandi þegar hún varð Ungfrú Ísland og síðar Miss Universe á Íslandi. Nýtrúlofaða parið eignaðist sitt annað barn saman í sumar en það kom í heiminn í stofunni heima hjá þeim á tveggja ára afmælisdegi dóttur þeirra.