Kaupa fiskmarkað í Bolungarvík undir sláturhús

Stein Ove Tveiten, forstjóri Arctic Fish, segir að með kaupunum …
Stein Ove Tveiten, forstjóri Arctic Fish, segir að með kaupunum verði hægt að koma upp framleiðslu á tiltölulega stuttum tíma. Mikil þörf er á aukinni sláturgetu vegna fiskeldis á Vestfjörðum.

Fisk­eld­is­fyr­ir­tækið Arctic Fish ehf. á Vest­fjörðum hef­ur í gegn­um dótt­ur­fé­lag sitt fest kaup á ný­bygg­ingu Fisk­markaðs Bol­ung­ar­vík­ur að Brimbrjóts­götu 12 í Bol­ung­ar­vík. „Fyr­ir­hugað er að koma upp laxaslát­ur­húsi í bygg­ing­unni og vill fé­lagið tryggja sér hús­næði með það í huga,“ að því er fram kem­ur í til­kynn­ingu frá Arctic Fish.

Fram­leiðsla fisk­eld­is fyr­ir­tæk­is­ins held­ur áfram að aukast og er séð fram á að stöðva þurfi vöxt ef slát­ur­geta vex ekki í takti við fram­leiðslu­aukn­ing­una. Arctic Fish hafi því talið nauðsyn­legt að flýta fyr­ir upp­bygg­ingu í kjöl­far mik­ill­ar óvissu um sam­starf við önn­ur fisk­eld­is­fé­lög á Vest­fjörðum um nýtt slát­ur­hús.

Nokk­ur óvissa skapaðist um staðsetn­ingu nýs slát­ur­húss eft­ir að Ísa­fjarðarbær gerði mis­tök við gerð lóðarleigu­samn­ings sem leiddi til þess að ÍS47 ehf. er með af­nota­rétt lóðar und­ir hús­um sem eru í eigu Arctic Fish.

„Slát­ur­mál fyr­ir­tæk­is­ins hafa verið í skoðun um nokk­urt skeið og hef­ur þar verið horft til þess að nýta stærðar­hag­kvæmni þess að byggja eitt stórt slát­ur­hús fyr­ir stærsta hluta þeirr­ar fram­leiðslu sem kem­ur frá Vest­fjörðum,“ seg­ir í til­kynn­ingu Arctic Fish vegna kaup­anna á nýju hús­næði á Bol­ung­ar­vík.

Fram kem­ur að marg­ir staðir hafa verið til skoðunar auk sam­starfs við önn­ur eld­is­fyr­ir­tæki um þá fram­kvæmd í nokkr­um sveit­ar­fé­lög­um. Hins veg­ar hafi sú vinna dreg­ist og ekki vitað hvenær henni lýk­ur, þó ligg­ur fyr­ir að bygg­ing­ar­tími nýs slát­ur­húss geti verið um tvö ár.

„Með því að kaupa um­rætt hús­næði sem hent­ar vel fyr­ir þessa starf­semi og er nán­ast til­búið er mögu­legt á til­tölu­lega stutt­um tíma að koma upp slát­ur­húsi sem ann­ar þeirri fram­leiðslu sem fram und­an er. Þrátt fyr­ir að ákvörðun um fjár­fest­ingu í slát­ur­húsi liggi ekki fyr­ir vill fé­lagið tryggja sér hús­næðið með það að mark­miði að koma þar upp slát­ur­húsi sem ann­ar fram­leiðslu fyr­ir­tæk­is­ins,“ seg­ir Stein Ove Tveiten, for­stjóri Arctic Fish, í til­kynn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins.

mbl.is