Leikkonan Ashley Judd segist vera tilbúin að fara aftur til Kongó eftir að hún mölbaut á sér fótlegginn þar fyrir 11 mánuðum. Judd er komin í ágætis form á þessu tæpa ári síðan hún slasaði sig en er þó enn smeyk.
Beinbrot Judd var gríðarlega slæmt og var ekki útséð um hvort hún myndi halda fætinum eða ekki. Hún féll um stóran trjádrumb inni í skóginum og brotnaði á fjórum stöðum. Það tók 55 tíma að koma henni á spítala og í aðgerð. Læknar höfðu áhyggjur af því að hún myndi hljóta varanlegan taugaskaða. Þá voru bestu spár þeirra að hún myndi byrja að hreyfa fótinn ári eftir slysið.
„Ég ætla að snúa til baka. Hjarta mitt er opið og ég er spennt. Ég veit ekki hvernig mér mun líða en það eina sem ég veit að ég á eftir að finna fyrir einhverju,“ skrifaði Judd á Instagram. Hún segist meðal annars þakklát fyrir fólkið sem bar hana í gegnum regnskóginn í marga klukkutíma.