Mikið um kóralþörunga í Veiðileysufirði

Ígulker hafa þótt fínasta afurð en ekki er ráðlegt að …
Ígulker hafa þótt fínasta afurð en ekki er ráðlegt að stunda ígulkerveiðar þar sem kóralþörungar eru í miklu magni.

Tölu­vert er af lif­andi kór­alþör­ung­um í Veiðileysu­firði og sunn­an­verðum Jök­ul­fjröðum sem gera það að verk­um að ekki er rétt­læt­an­legt að leyfa ígul­ker­veiðar á þess­um svæðum. Þetta er meðal þess sem fram kem­ur í skýr­lsu um könn­un á út­breiðslu skolla­kopps (ígul­kera) í Jök­ul­fjörðum sem birt hef­ur verið á vef Haf­rann­sókna­stofn­un­ar.

Greinótt­ir kór­alþör­ung­ar mynda afar viðkvæm og fjöl­breyti­legt búsvæði með hátt vernd­ar­gildi. Þau eru tal­in mik­il­væg fyr­ir ungviði nytja­stofna og ætti því ekki að stunda plóg­veiðar á þeim,“ seg­ir í skýrsl­unni.

Kort sem sýnir staðsetningu tilraunatoganna 1‐12 í Jökulfjörðum. Sýnd eru …
Kort sem sýn­ir staðsetn­ingu til­rauna­tog­anna 1‐12 í Jök­ul­fjörðum. Sýnd eru núm­er toga, lengd og stefna. Kort/​Haf­rann­sókna­stofn­un

Könn­un­in á út­breiðslu teg­und­ar­inn­ar fór fram á 12 stöðum og leiddi í ljós nýt­an­leg veiðisvæði í Jök­ul­fjörðum. Þá seg­ir að magn skolla­kopps var mest syðst í Jök­ul­fjörðum um 120 til 230 kíló eft­ir tíu mín­útna tog. Stærð skolla­kopps var met­in sjón­rænt yfir leyfi­legri lönd­un­ar­stærð á öll­um stöðvum.“

„Greinótt­ir kór­alþör­ung­ar sáust á 7 af 9 stöðvum þar sem mynd­ir voru tekn­ar en í mis­miklu magni. Í Veiðileysu­firði var mikið um lif­andi kór­alþör­unga og einnig á stöð 10 í sunn­an­verðum Jök­ul­fjörðum og skildu veiðar því ekki fara þar fram,“ seg­ir í skýrsl­unni.

mbl.is