Loðnuleiðangri frestað

Þorsteinn Sigurðsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, segir til standi að meta hvernig …
Þorsteinn Sigurðsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, segir til standi að meta hvernig loðnumælingum verður háttað síðar í vikunni. Til stóð að hefja leiðangur í dag. mbl.is/Arnþór Birkisson

Ekki verður farið í leiðang­ur með rann­sókn­ar­skip­um Haf­rann­sókna­stofn­un­ar til þess að mæla veiðistofn loðnu í dag eins og stóð til, en staðan verður aft­ur tek­in í miðri viku. Þetta seg­ir Þor­steinn Sig­urðsson, for­stjóri Haf­rann­sókna­stofn­un­ar, í sam­tali við Morg­un­blaðið.

Var þetta ákveðið vegna veðurs en einnig vegna þess að Haf­rann­sókna­stofn­un vill tryggja að hægt sé að staðsetja loðnuna vel til þess að taka á móti megn­inu af henni.

„Hún kem­ur mis­jafn­lega snemma und­an ísn­um við Græn­land. Ef mögu­legt er, þá er hent­ugra að bíða með loka­mæl­ing­una ef við ætl­um að ná utan um verk­efnið, þegar hún er öll til staðar,“ seg­ir hann. Fylg­ist stofn­un­in vel með veiðum og er í sam­bandi við menn í flot­an­um til þess að fylgj­ast með þeim ásamt kynþroska og ástandi á loðnunni. „Slíkt hjálp­ar okk­ur að meta hvenær hún fer upp á grunn­inn, við þurf­um að ná mæl­ing­un­um áður,“ seg­ir hann.

Loðnu­veiðar standa nú yfir norðaust­ur úr Langa­nesi. „En það sem er komið lengst er lík­leg­ast komið aðeins suður fyr­ir Langa­nesið.“

Spurður hvert verður farið þegar lagt verður af stað í leiðang­ur­inn seg­ir Þor­steinn:

„Það velt­ur á þeim upp­lýs­ing­um sem við höf­um hverju sinni. Það þarf auðvitað að fara allt frá Vest­fjarðarmiðum og aust­ur út. Ann­ars geti færi suður um byrjað fyr­ir aust­an eða bæði, það er mats­atriði þegar við tök­um ákvörðun um að fara,“ seg­ir Þor­steinn. Veiðarn­ar hafa gengið ágæt­lega að hans sögn, eins og bú­ist var við.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: