Fengu hærra verð fyrir laxinn í fyrra

Laxeldisfyrirtækin fengu góð verð fyrir afurðirnar á síðasta ári.
Laxeldisfyrirtækin fengu góð verð fyrir afurðirnar á síðasta ári. mbl.is/Helgi Bjarnason

Meðal­verð á eld­islaxi á mörkuðum nam 64,14 norsk­um krón­um á kíló, jafn­v­irði 944 ís­lenskra króna, síðustu viku árs­ins 2021. Um er að ræða 7,26% lækk­un meðal­verðs frá vik­unni á und­an en 6,32% hærra meðal­verð en var í lok nóv­em­ber og 19,46% hærra verð en var í byrj­un októ­ber þegar feng­ust 53,68 norsk­ar krón­ur á kíló.

Síðustu vik­una árið 2020 var meðal­verð ein­ung­is um 52 norsk­ar krón­ur, er það langt und­ir því sem feng­ist hef­ur á mörkuðum frá því í lok fe­brú­ar og hafa verð því verð þokka­leg á síðasta ári. Þetta má lesa úr laxa­vísi­tölu Nas­daq.

Þróun meðalverðs 2021.
Þróun meðal­verðs 2021. Skjá­skot/​Nas­daq

Hæsta meðal­verð var um miðjan des­em­ber þegar feng­ust tæp­lega 75 norsk­ar krón­ur, 1.100 ís­lensk­ar krón­ur, fyr­ir kíló af eld­islaxi að meðaltali. Er það hæsta meðal­verð árs­ins 2021 en litlu munaði að svipað meðal­verð var um miðjan maí.

Verð voru á mik­illi hreyf­ingu í árs­byrj­un en verð hrundi 2020 þegar gripið var til lok­anna vegna kór­ónu­veirufar­ald­urs­ins. Þá byrjuðu verð að hækka á ný þegar hófst að opna sum­arið það ár en verð féll á ný þegar þurfti að grípa til sótt­varnaaðgerða á ný með haust­inu og hélst verð lágt mest allt árið 2020.

Þróun meðalverðs árið 2020. Verð á laxi var mun minna …
Þróun meðal­verðs árið 2020. Verð á laxi var mun minna en árið á eft­ir. Skjá­skot/​Nas­daq

Mik­ill verðmun­ur eft­ir stærð

Í des­em­ber­lok fékkst hæsta meðal­verð fyr­ir lax á stærðarbil­inu sex til sjö kíló eða 67,98 norsk­ar krón­ur, jafn­v­irði 1.000 ís­lenskra króna. Lægsta meðal­verð fékkst fyr­ir lax á stærðarbil­inu eitt til tvö kíló eða 44,6 norsk­ar krón­ur, jafn­v­irði 656 ís­lenskra króna.

Ef litið er til lax sem er í hefðbund­inni slát­ur­stærð, þrjú til sex kíló, nam meðal­verð á mörkuðum síðustu viku síðasta árs 64,47 norsk­um krón­um á kíló, jafn­v­irði 950 ís­lenskra króna. Er þetta 7,31% lægra en vik­una á und­an, en 6,92% hærra en meðal­verð í nóv­em­ber­lok og 21,82% hærra en í byrj­un októ­ber.

mbl.is