Litið til andstöðu íbúanna

Fiskeldi Austfjarða hyggst nota 24 sjókvíar í einu á tveimur …
Fiskeldi Austfjarða hyggst nota 24 sjókvíar í einu á tveimur eldissvæðum í Seyðisfirði. Þriðja svæðið verði í hvíld. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Skipu­lags­stofn­un tel­ur að óvissa ríki um áhrif lax­eld­is á sam­fé­lagið í Seyðis­firði en þau geti orðið tals­vert eða veru­lega nei­kvæð ef ekki næst sátt í nærsam­fé­lag­inu.

Í því sam­bandi er vísað til fjölda at­huga­semda íbúa vegna áforma um sjókvía­eldi. Tel­ur Skipu­lags­stofn­un æski­legt að strandsvæðaskipu­lag, sem unnið er að, liggi fyr­ir áður en ein­stök­um svæðum verði ráðstafað.

Fisk­eldi Aust­fjarða hef­ur unnið að und­ir­bún­ingi fram­leiðslu á 10 þúsund tonn­um af laxi í sjókví­um í Seyðis­firði og er um­hverf­is­mati loki. Áformin miðast við að nýta heim­ild­ir í burðarþols­mati og áhættumati Hafró og verður hluti heim­ild­anna notaður til eld­is á ófrjó­um laxi. 

Nán­ar má lesa um málið í Morg­un­blaðinu. 

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: