Í vikunni var öldumælisdufli á vegum siglingasviðs Vegagerðarinnar sleppt á Grímseyjarsundi, að þvi er fram kemur í færslu á vef Landhelgisgæslunnar. Þar segir að varðskipið Freyja sé vel búið krönum og við aðgerðina voru brautarkranar og sleppikrumlur krananna notaðar til að koma duflinu og legufærinu fyrir.
Til að tryggja að duflið færi á nákvæmlega þann stað sem það átti notaði Friðrik Höskuldsson, skipherra, DP-kerfi. „Búnaður Freyju gerir verkefni sem þetta mun skilvirkara og öruggara fyrir áhöfnina,“ segir í færslunni.
Freyja hefur einnig annast eftirliti í lögsögunni að undanförnu og var í ferðinni sinnt fjareftirlit haft með fiskiskipum, þar á meðal uppsjávarveiðiskipum norðaustur af Langanesi en skipin voru þar á loðnuveiðum. Vegna fjölda Covid-19 smita í samfélaginu var ekki farið um borð í skipin að þessu sinni.
Varðskipið Freyja lagðist svo að Óskarsbryggju á Siglufirði síðdegis í gær.