Halda í loðnuleiðangur á morgun

Þorsteinn Sigurðsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, staðfestir að loðnuleiðangurinn hefst á morgun.
Þorsteinn Sigurðsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, staðfestir að loðnuleiðangurinn hefst á morgun. mbl.is/Arnþór Birkisson

Árleg­ur leiðang­ur til að mæla stofn­stærð loðnu hefst á morg­un. Þetta staðfest­ir Þor­steinn Sig­urðsson, for­stjóri Haf­rann­sókna­stofn­un­ar, í sam­tali við 200 míl­ur. Niður­stöður munu vera grund­völl­ur end­ur­skoðunar veiðiráðgjaf­ar HAf­arnn­sókna­stofn­un­ar fyr­ir yf­ist­and­andi vertíð en ráðgjöf­in sem gef­in var út í haust nam 904 þúsund tonn­um.

Leiðang­ur­inn átti að fara af stað fyr­ir viku en var frestað. Var sú ákvörðun sögð tek­in vegna veðurs og til að tryggja að hægt yrði að staðsetja loðnuna vel til þess að taka á móti megn­inu af henni.

Þor­steinn viður­kenn­ir að það sé ekk­ert góð veður­spá í kort­un­um en það sé kannski endi­lega hægt að bú­ast við öðru og aðeins hægt að reyna að sinna verk­efn­inu eins vel og kost­ur er. „Það er búið að und­ir­búa þetta allt og erum að miða við það að fara á morg­un.“

Að þessu sinni taka aðeins haf­rann­sókna­skip­in Bjarni Sæ­munds­son og Árni Friðriks­son þátt í leiðangr­in­um. Á síðasta ári tóku þátt átta skip, en ekki feng­ust skip hjá út­gerðunum að þessu sinni vegna þess hve loðnu­vertíðin nú er um­fangs­mik­il.

„Við áum von­andi ein­hverja aðstoð frá veiðiskip­un­um, ekki til mæl­ing­anna held­ur að geta nýtt þeirra þekk­ingu á ástand­inu,“ seg­ir Þor­steinn.

Get­ur verið happa­drátt­ur

Spurður hvort tak­markaður skipa­kost­ur og veður­horf­ur munu hafa áhrif á for­send­ur vænt­an­legr­ar ráðgjaf­ar svar­ar hann: „Ég er ekki til­bú­inn að gefa eitt­hvað út um það áður en farið er af stað. Við vinn­um út frá því að okk­ur tak­ist þetta á hálf­um mánuði. Ef það geng­ur ekki upp verðum við að meta stöðuna eins og hún verður eft­ir nokkra daga. Reynsl­an sýn­ir okk­ur að það get­ur verið happa­drætti og vinn­um bara út frá því. Þetta gæti al­veg verið jafn mikið happa­drætti þó við vær­um með fimm skip.“

Hann seg­ir ald­ur rann­sókna­skip­anna ekki vera sér­stakt áhyggju­efni. „Árni Friðriks­son er stórt og mikið skip og er al­veg full­fært í þess­ar rann­sókn­ir og hef­ur verið alla tíð. Bjarni Sæ­munds­so­ne r kom­inn til ára sinna en er full fær í þess­ar rann­sókn­ir þó hann geti ekki at­hafnað sig við all­ar aðstæður eins og nýj­ustu og stærstu skip­in. Við meg­um ekki gleyma því að Árni var al­gjör sjó­borg­hér þangað til að skip­in fóru að stækka svona og var lengi vel eina skipið sem var notað í mæl­ing­arn­ar.“

Gert er ráð fyr­ir að leiðang­ur­inn muni vera fimmtán dag­ar á hverju skipi, að sögn Þor­steins. „Við tök­um stöðuna dag­lega og bregðumst við sama hvað ger­ist í þessu. En það er janú­ar og við erum á Íslandi. Það er bara staðreynd­in í þessu.“

Skip Hafrannsóknastofnunar við bryggju í Hafnarfirði.
Skip Haf­rann­sókna­stofn­un­ar við bryggju í Hafnar­f­irði. mbl.is/​sisi
mbl.is