ESA segir íslenska ríkið brotlegt

Fram kemur að stofnunin stofnin átelji íslenska ríkið og sérstaklega …
Fram kemur að stofnunin stofnin átelji íslenska ríkið og sérstaklega þá Kristján Þór Júlíusson og Guðmund Inga Guðbrandsson fyrir að bregðast ekki við bráðabirgðaúrskurðinum. Samsett mynd

Eft­ir­lits­stofn­un EFTA (ESA) hef­ur kom­ist að þeirri niður­stöðu að ís­lenska ríkið hafi gerst brot­legt við átta grein­ar í regl­um EES-samn­ings­ins um mat á um­hverf­isáhrif­um þegar það breytti lög­um um fisk­eldi í októ­ber 2018.

Þá átel­ur stofn­un­in ís­lenska ríkið og sér­stak­lega fyrr­ver­andi um­hverf­is- og auðlindaráðherra Guðmund Inga Guðbrands­son og fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra Kristján Þór Júlí­us­son, fyr­ir að bregðast ekki við bráðabirgðaúrsk­urðinum, fyr­ir að nota hin röngu lög til þess að veita starfs- og rekstr­ar­leyfi til fisk­eld­is­fyr­ir­tækja án um­hverf­is­mats og fyr­ir að gera brot­in verri með aðgerðal­eysi sínu þegar leyf­in voru ekki aft­ur­kölluð, að því er Land­vernd grein­ir frá

Fram kem­ur, að ís­lensk stjórn­völd hafi nú tvo mánuði til að breyta þeim lög­um sem samþykkt voru á Alþingi í októ­ber 2018. Land­vernd kærði af­greiðslu máls­ins til ESA í lok árs 2018.

„Með þessu staðfest­ir ESA og bæt­ir í bráðabirgðaúrsk­urð sinn frá í apríl 2020. Skv. bráðabirgðaúrsk­urðinum braut ís­lenska ríkið gegn fjór­um grein­um EES reglna um um­hverf­is­mat en niðurstaðan nú er að átta grein­ar regln­anna hafi verið brotn­ar.

Tregða ís­lenskra stjórn­valda til að fylgja ákvæðum alþjóðlegra samn­inga um um­hverf­is­vernd og að hunsa bráðabirgðaúrsk­urð ESA mun að óbreyttu leiða til þess að ís­lensk stjórn­völd verða enn einu sinni að standa frammi fyr­ir EFTA dóm­stóln­um,“ seg­ir í til­kynn­ingu Land­vernd­ar.

mbl.is