Laxinn slær öll met

Um 35% aukningu er að ræða.
Um 35% aukningu er að ræða. mbl.is/Helgi

Fram­leidd voru 46.500 tonn af laxi hér á landi á nýliðnu ári, 12 þúsund tonn­um meira en árið áður, sam­kvæmt upp­lýs­ing­um Mat­væla­stofn­un­ar. Er þetta 35% aukn­ing frá ár­inu áður en síðustu ár hef­ur einnig verið mik­il aukn­ing. Sam­svar­ar aukn­ing­in í fyrra 35% og seg­ir sér­fræðing­ur í fisk­eldi að það sé heims­met, hvergi sé svo mik­il aukn­ing í eldi á atlants­hafslaxi.

Heild­ar­fram­leiðsla í fisk­eldi jókst held­ur minna, eða um 31%, vegna stöðnun­ar í bleikju­eldi sem átt hef­ur í vök að verj­ast á mörkuðum vegna kór­ónu­veirufar­ald­urs­ins.

Hluti af aukn­ing­unni á síðasta ári staf­ar af því að sjó­eld­is­fyr­ir­tæki þurftu að flýta slátrun vegna góðs vaxt­ar og veiru­sjúk­dóms sem kom upp á Aust­ur­landi. Eigi að síður er spáð aukn­ingu og að fram­leiðsla á laxi rjúfi 50 þúsund tonna múr­inn áður en árið er liðið.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: