Markaður fyrir lax er góður og hátt verð

Sigurður Pétursson segir mikil aðlögunarhæfni hafi skipt sköpum í sölu …
Sigurður Pétursson segir mikil aðlögunarhæfni hafi skipt sköpum í sölu lax. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Ég tel að árið hafi verið betra en menn áttu von á,“ seg­ir Sig­urður Pét­urs­son, sér­fræðing­ur í fisk­eldi um þá miklu fram­leiðslu­aukn­ingu sme orðið hef­ur í fisk­eldi hér á landi á síðasta ári.

Hann stofnaði Arctic Fish á sín­um tíma en lét af störf­um hjá fyr­ir­tæk­inu á síðasta ári og stofnaði Lax-inn, fræðslumiðstöð fisk­eld­is.

Sig­urður bend­ir á að lax sé dýr vara. Stór hluti afurðanna hafi farið á hót­el- og veit­inga­markaðinn. Sá markaður hafi hrunið í kór­ónu­veirufar­aldr­in­um. Það hafi haft mik­il áhrif á verðið en markaður­inn náð að jafna sig.

„Þeir sem vinna og selja lax sýndu mikla aðlög­un­ar­hæfni með því að skipta yfir í neyt­endaum­búðir fyr­ir stór­markaði. Það hef­ur haft í för með sér að verðið hef­ur náð sér og er hátt. Þá hef­ur auk­in heilsu­vit­und í þessu heims­ástandi leitt til þess, að mati grein­enda, að neyt­end­ur leiti í heilsu­sam­lega vöru. Þar kem­ur lax­inn sterk­ur inn.“

„Loks má nefna að neyt­end­ur verða sí­fellt meðvitaðri um kol­efn­is­spor vör­unn­ar sem þeir kaupa. Spor lax­ins er lægra en á flest­um öðrum afurðum dýra. Það hef­ur hjálpað,“ seg­ir Sig­urður.

Eft­ir­spurn meiri en fram­boð

Árið 2022 byrj­ar vel. Verðið lækk­ar venju­lega eft­ir jól en það er óvenju­lega hátt nú. Sig­urður tel­ur að spá­kaup­mennska ráði nokkru um það. „Flest­ir grein­end­ur telja að heims­fram­leiðsla á laxi muni aukast um 2-3% á ári á meðan markaður­inn stækki um 5-7%. Eft­ir­spurn­in vex hraðar en fram­boðið og menn eru því til­bún­ir að greiða hærra verð en ann­ars hefði verið,“ seg­ir Sig­urður.

Hann seg­ir að þetta sé gott fyr­ir fram­leiðend­ur á Íslandi. Hér sé aukn­ing í eldi, ólíkt því sem ger­ist í flest­um öðrum lönd­um.

„Það vant­ar að við sem mat­væla­fram­leiðsluþjóð setj­um okk­ur stefnu í upp­bygg­ingu sjó­rækt­ar. Setj­um okk­ur mark­mið sem eru mæl­an­leg í magni og tíma,“ seg­ir Sig­urður þegar hann er spurður um framtíðina. Hann fagn­ar þó áhersl­um varðandi fisk­eldi sem koma fram í stjórn­arsátt­mála rík­is­stjórn­ar­inn­ar.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: