Bjóða 200 milljarða í eiganda Arctic Fish

Laxeldi MOWI í Beitveitnes í Noregi. Mowi er stærsta laxeldisfyrirtæki …
Laxeldi MOWI í Beitveitnes í Noregi. Mowi er stærsta laxeldisfyrirtæki í heimi og hefur boðið tæplega 200 milljarða króna í allt hlutafé í NTS eigenda Arctic Fish. Ljósmynd/MOWI

Mowi, stærsta lax­eld­is­fyr­ir­tæki í heimi, hef­ur í dag lagt fram til­boð um kaup á öllu hluta­fé í norska fé­lag­inu NTS fyr­ir alls 13,8 millj­arða norskra króna, jafn­v­irði 198,5 millj­arða ís­lenskra króna.

NTS hef­ur að und­an­förnu komið upp sjöttu stærstu lax­eld­is­sam­steypu heims­ins und­ir merkj­um Norweg­i­an Royal Salmon sem er meðal ann­ars eig­andi Arctic Fish á Vest­fjörðum.

Að und­an­förnu hafa ríkt mikl­ar deil­ur milli hlut­hafa inn­an NTS. Hóp­ur hlut­hafa fé­lags­ins hafa viljað taka NTS yfir og eru sagðir hafa gert upp­reisn á hlut­hafa­fundi á föstu­dag, en Hans Mart­in Storo, sem varð nýr stjórn­ar­formaður á fund­in­um, sagði sig frá upp­reisn­inni og greiddi at­kvæði gegn yf­ir­töku­til­boði hóps­ins.

Í dag kem­ur síðan til­boð frá Mowi í allt hluta­fé NTS fyr­ir 13,8 millj­arða norskra króna og er áætl­un­in að greiða helm­ing af kaup­verðinu með nýju hluta­fé í Mowi og helm­ing með pen­ing­um, að því er fram kom í til­kynn­ingu fé­lags­ins til norsku kaup­hall­ar­inn­ar.

Intrafish hef­ur eft­ir Ivan Vind­heim, for­stjóra Mowi, að meiri­hluti hlut­hafa NTS hafi óskað eft­ir til­boði frá Mowi. Þó vill hann ekki greina frá því hverj­ir það eru sem báðu um til­boðið.

„Þetta er vina­leg til­færsla inn­an grein­ar­inn­ar af hálfu Mowi,“ er haft eft­ir Vind­heim. „Við von­um að það geti skipt máli fyr­ir hlut­hafa og starfs­menn. NTS fell­ur mjög vel að Mowi stefnu­lega séð. Við vilj­um þróa fyr­ir­tækið sam­an.“

mbl.is