Matvælastofnun hefur ákveðið að skrá Sæbýli rekstur ehf. með fiskeldi í Grindavík, að því er fram kemur á vef stofnunarinnar. Um er að ræða landeldi á sæeyrum og er hámarkslífmassinn skráður 200 tonn.
Fyrir ári fékk Sæbýli starfsleyfi sem heimilar eldi á sæeyrum á Eyrarbakka og er hámarkslífmassi leyfisins 70 tonn. Sú starfsemi átti að vera hýst í 1.650 fermetra húsnæði sem áður fór fram fiskvinnsla.
Sæeyrnastofninn sem ræktaður er má rekja til Japans en í Asíu er þessu skelfiskur eftirsótt matvæli.