Kaldur sjór hefur aukið álag á lax í sjókvíum á laxeldissvæðum Arctic Fish í Dýrafirði og hefur fyrirtækið orðið vart við auknum afföllum, að því er fram kemur í tilkynningu á vef fiskeldisfyrirtækisins.
„Eftir óvenju gott sumar og haust með miklum vexti og litlum afföllum hafa afföll aukist og gætu þessar vikurnar farið í um 3% af lífmassa,“ segir í tilkynningunni.
Þá er vakin athygli á að fiskurinn sem um ræðir sé kominn í sláturstærð og að slátrun hafi því verið flýtt til að koma í veg fyrir frekari afföll. Það sem af er ári hefur verið slátrað um 1.200 tonnum úr kvíunum í Dýrafirði.