Á æskustöðvarnar vegna uppbyggingar fiskeldis

Iða Marsibil Jónsdóttir tók nýlega við stöðu framkvæmdastjóra Lax-inn, fræðslumiðstöðvar …
Iða Marsibil Jónsdóttir tók nýlega við stöðu framkvæmdastjóra Lax-inn, fræðslumiðstöðvar í fiskeldi. Ljósmynd/Lax-inn

„Ég fór aft­ur heim á æsku­stöðvar mín­ar á Bíldu­dal árið 2014 til þess að taka þátt í upp­bygg­ingu fisk­eld­is hjá Arn­ar­laxi. Má segja að þorpið hafi munað sinn fíf­il fegri og ekki mikið um að vera í at­vinnu­líf­inu fyr­ir utan Kalkþör­unga­vinnsl­una. Bíldu­dal­ur var hluti af „Brot­hætt­um byggðum“, verk­efni Byggðastofn­un­ar, í kring­um 2010 sem sýn­ir hversu ástandið var bág­borið áður en fisk­eldið kom til sög­unn­ar,“ seg­ir Iða Marsi­bil Jóns­dótt­ir, sem ný­lega tók við stöðu fram­kvæmda­stjóra Lax-inn, fræðslumiðstöðvar í fisk­eldi. Staðan er gjör­breytt nú.

Iða er skóla­bók­ar­dæmi um konu sem fer ung að heim­an til þess að mennta sig en ílend­ist í Reykja­vík vegna þess að ekki eru tæki­færi til að snúa aft­ur heim. „Lax­eldið gaf okk­ur brott­flutt­um Vest­f­irðing­um tæki­færi til að fara aft­ur heim.“

Hún var þriðji starfsmaður fyr­ir­tæk­is­ins þegar hún flutti vest­ur árið 2014 og gekk í upp­hafi í öll störf á skrif­stofu og tók jafn­vel þátt í að fóðra fisk úti á kví­um. Hún varð síðan mannauðsstjóri Arn­ar­lax.

Það þurfti kjark til að flytja sig til Bíldu­dals með börn­in á þess­um tíma. Enn var óvissa með leyf­in og í ljósi sög­unn­ar ekki vitað hvað yrði úr fisk­eld­is­fyr­ir­tækj­un­um. Arn­ar­lax varð stærsta fisk­eld­is­fyr­ir­tæki lands­ins og er enn og hef­ur alla tíð verið með höfuðstöðvar sín­ar á Bíldu­dal. Í gegn­um þetta litla þorp fóru á síðasta ári yfir 3% af út­flutn­ings­tekj­um þjóðar­inn­ar.

Laxi pakkað fyrir Evrópumarkað í sláturhúsi Arnarlax á Bíldudal.
Laxi pakkað fyr­ir Evr­ópu­markað í slát­ur­húsi Arn­ar­lax á Bíldu­dal. mbl.is/​Helgi Bjarna­son

Staðan í þorp­inu er gjör­breytt. Nú er búið í öll­um íbúðar­hús­um en áður voru mörg hús notuð sem sum­ar­dval­arstaðir brott­fluttra Bíld­dæl­inga enda erfitt að selja. „Ég keypti húsið sem ég ólst upp í til tíu ára ald­urs. Það var að grotna niður og við pabbi rif­um allt út úr því og inn­réttuðum upp á nýtt,“ seg­ir Iða Marsi­bil.

Sag­an end­ur­tek­ur sig. Börn­in eru far­in suður og Iða Marsi­bil fær­ir sig um set til að vera nær þeim og auka við mennt­un sína um leið. En hún er ánægð með það tæki­færi að hafa getað búið og starfað heima á Bíldu­dal þessi sjö ár.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: