Arnarlax hefur hafið framleiðslu í seiðaeldisstöð að Hallkelshólum í Grímsnesi. Fyrirtækið festi nýverið kaup á rekstrinum sem fram fer undir merkjum Fjallalax, en leifgir mannvirkið af landeigenda.
Í stöðinni, sem hefur verið rekin undir merkjum Fjallalax, var á dögunum komið fyrir um 500 þúsund hrognum, að því er fram kemur í tilkynningu fyrirtækisins.
Í síðustu viku veitti Matvælastofnun stöðinni 100 tonna rekstrarleyfi fyrir seiða- og mateldi á lax og bleikju.
Fram kemur að Matthew Chernin frá Kaliforníu í Bandaríkjunum sé stöðvarstjóri Fjallalax. Matthew, sem flutti til Selfoss á síðasta ári, er með meistaragráðu í ræktun sjávarafurða (e. aquaculture) frá NMBU-háskóla í Noregi. Jafnframt hefur hann áður starfað við fiskeldi í Washington-ríki í Bandaríkjunum auk þess að hafa starfað í greininni á Sri Lanka og í Noregi.
„Matthew hefur staðið í ströngu við undirbúning á aukningu framleiðslunnar síðustu misseri,“ segir í tilkynningunni.
Seiðaeldisstöðin að Hallkelshólum var byggð af Gísla Hendrikssyni og Rannveigu Björgu Albertsdóttur sem einnig hafa látið sig starfsemina að Sólheimum varða. Til að fagna því að laxeldi sé hafið í stöðinni veitti Arnarlax hálfa milljón króna í ferðasjóð fatlaðra íbúa Sólheima.
„Arnarlax er sem áður segir þegar með starfsemi á tveimur öðrum stöðum á Suðurlandi, sem orðið er eitt fremsta fiskeldissveitarfélag landsins en fjölmörg eldisfyrirtæki hafa valið sér stað þar. Starfsemi Arnarlax á Ölfusi fer ört vaxandi og starfa nú 15 manns hjá fyrirtækinu á Suðurlandi,“ segir að lokum.
Uppfært 2. febrúar 2022: Upphaflega stóð að Arnarlax hafi fest kaup á stöðinni en rétt er að fest var kaup á rekstrinum. Fréttin hefur verið leiðrétt með tilliti til þessa.