Mun meira af eldislaxi til Bandaríkjanna og Kanada

Mun stærri hlutur úr íslensku eldi rataði til Bandaríkjanna í …
Mun stærri hlutur úr íslensku eldi rataði til Bandaríkjanna í fyrra en 2020. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason

Flutt­ar voru út eldisaf­urðir fyr­ir 36 millj­arða króna í fyrra og fóru þær til kaup­enda í á fimmta tug ríkja. Fyr­ir ára­tugi voru lönd­in 25 og út­flutn­ings­verðmæti rétt rúm­ir 4 millj­arðar króna, að því er fram kem­ur í um­fjöll­un Radars­ins.

Fram kem­ur að um 73% eldisaf­urðanna voru flutt­ar til Evr­ópu í fyrra miðað við verðmæti þeirra en vægi Evr­ópu var 86% árið 2020. „Ástæðan er einkum stór­auk­inn út­flutn­ing­ur á eldisaf­urðum vest­ur um haf, sem var langt um­fram þá aukn­ingu sem var á út­flutn­ingi til Evr­ópu. Þannig nam út­flutn­ings­verðmæti eldisaf­urða til Evr­ópu 26,5 millj­örðum króna í fyrra, sem er ríf­lega 8% aukn­ing á milli ára á föstu gengi. Útflutn­ings­verðmæti eldisaf­urða til Norður-Am­er­íku nam um 8,8 millj­örðum króna, sem er um 144% aukn­ing á milli ára. Hlut­deild Norður-Am­er­íku fór þar með úr tæp­um 13% í rúm 24%.“

Mynd/​Radar­inn

Mesta bleikj­an til Banda­ríkj­anna

Banda­rík­in hafa verið eitt mik­il­væg­asta markaðssvæði fyr­ir ís­lensk­ar eldisaf­urðir um ára­bil og fer mest af bleikju­af­urðum þangað. „Vægi hans minnkaði þó tals­vert á öðrum ára­tug þess­ar­ar ald­ar sam­fara auknu lax­eldi. Sú varð þó ekki raun­in í fyrra. Vægi banda­ríska markaðar­ins jókst veru­lega og fór hlut­deild hans í út­flutn­ings­verðmæti eldisaf­urða úr 11% í 19% á milli ára. Aukn­ing­una má fyrst og fremst rekja til veru­legr­ar aukn­ing­ar á út­flutn­ingi á eld­islaxi,“ seg­ir á Radarn­um.

Útflutn­ings­verðmæti eldisaf­urða sem seld­ar voru til Banda­ríkj­anna í fyrra var 6,8 millj­arðar króna sem er 122% meira en árið á und­an. Verðmæti laxaf­urðanna eitt og sér var 5,1 millj­arður en það er 261% meira en 2020.

Mesta aukn­ing­in var hins veg­ar til Kan­ada og voru flutt­ar afurðir þangað að verðmæti 2 millj­arða króna á síðasta ári, sem er um 266% aukn­ing frá 2020. Lax­inn er fyr­ir­ferðamik­ill í þess­um töl­um en út­flutn­ings­verðmæti laxaf­urða til Kan­ada sjö­földuðust milli ára.

Mynd/​Radar­inn
mbl.is