Íslendingar fögnuðu Valentínusardeginum í gær. Sumir fengu blóm frá betri helmingnum, aðrir húðflúr eða súkkulaði. Íslenskar stjörnur voru líka duglegar að senda ástinni sinni stutta kveðjur á samfélagsmiðlum. Sara Sigmundsdóttir crossfit-stjarna óskaði sjálfri sér til hamingju með daginn enda ekkert betra heldur en góð sjálfsást.
Svala Björgvinsdóttir birti mynd af sér og unnusta sínum Kristjáni Einari Sigurbjörnssyni kyssast. „Valentínusinn minn,“ skrifaði Svala.
Listakonan Sunneva Ása Weisshappel birti fallega mynd af sér og kærasta sínum, kvikmyndagerðarmanninum Baltasar Kormáki í sögu á Instagram. „Gleðilegan Valentínusardag,“ stóð á myndinni.
Crossfit-stjarnan Annie Mist Þóristdóttir fagnaði því að hún og barnsfaðir hennar, Frederik Emil Ægidius, hafa verið saman í 11 Valentínusardaga. Eiga þeir bara eftir að vera fleiri segir Annie sem segir Frederick vera ástina í lífinu sínu.
Fótboltakappinn Albert Guðmundsson birti mynd af sér og kærustu sinni, Guðlaugu Elísu Jóhannsdóttur í tilefni Valentínusardagsins í sögu á Instagram.
Leikkonan Elma Stefanía Ágústsdóttir gaf eiginmanni sínum, rithöfundinum Mikael Torfasyni húðflúr í Valentínusargjöf.
Leikkonan Saga Garðarsdóttir gleymdi ekki Valentínusardeginum og birti mynd í sögu á Instagram af ástunum í lífi sínu, dóttur sinni og eiginmanni, tónlistarmanninum Snorra Helgasyni.
Crossfit-stjarnan Sara Sigmundsdóttir stundaði sjálfsást á Valentínusardaginn. „Til hamingju með Valentínusardaginn frá mér til mín,“ skrifaði Sara.
Söngkonan Heiða Ólafs fékk að sjálfsögðu rósavönd frá eiginmanni sínum, hugbúnaðarverkfræðingnum Helga Páli Helgasynu en þau gengu í hjónaband í júlí í fyrra.
Kokkurinn Helga Gabríela Sigurðardóttir bakaði Valentínusarköku í tilefni dagsins fyrir eiginmann sinn, Frosta Logason fjölmiðlamann.