Arnarlax og Arctic í eina sæng?

Höfuðstöðvar og aðalstarfsstöð Arnarlax á Bíldudal.
Höfuðstöðvar og aðalstarfsstöð Arnarlax á Bíldudal. Ljósmynd/Arnarlax

Móður­fé­lag Arn­ar­lax hef­ur eign­ast meiri­hlut­ann í móður­fé­lagi Arctic Fish. Boðar eig­and­inn, norska fisk­eld­is­fyr­ir­tækið SalM­ar, að samruni norsku fé­lag­anna muni hafa í för með sér sam­legðaráhrif í starf­sem­is­stöðvum þess í Nor­egi og á Íslandi. Má því bú­ast við nánu sam­starfi eða sam­ein­ingu þessarra tveggja vest­firsku lax­eld­is­fyr­ir­tækja sem eru stærstu fisk­eld­is­fyr­ir­tæki lands­ins.

Tölu­verðar hrær­ing­ar hafa verið í eign­ar­haldi norskra fisk­eld­is­fyr­ir­tækja á síðustu mánuðum og árum og snerta þær ís­lensku dótt­ur­fé­lög­in. Þannig komust Fisk­eldi Aust­fjarða og Lax­ar fisk­eldi, bæði stóru fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­in á Aust­fjörðum, í eigu sama fyr­ir­tæk­is, Måsøval, í nóv­em­ber 2020. Á síðasta ári var unnið að sam­ein­ingu aust­firsku fé­lag­anna en því verki mun ekki lokið.

Síðastliðið sum­ar börðust norsku fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­in SalM­ar, meiri­hluta­eig­andi Arn­ar­lax, og NTS um yf­ir­ráð yfir Norway Royal Salmon (NRS) sem er meiri­hluta­eig­andi Arctic Fish á Vest­fjörðum. Hafði NTS bet­ur.

Mögu­leik­ar á stækk­un

Nú hafa verður skip­ast þannig í lofti að SalM­ar er að gleypa NTS með húð og hári. Verður fyr­ir­tækið þar með annað stærsta fisk­eld­is­fyr­ir­tæki Nor­egs og eig­andi tveggja stærstu lax­eld­is­fyr­ir­tækja Íslands, Arn­ar­lax og Arctic Fish, sem eru með meg­in­hluta starf­semi sinn­ar, þar með allt sjó­eldið, á Vest­fjörðum.

SalM­ar gerði til­boð í hluta­bréf NTS í byrj­un vik­unn­ar, í sam­keppni við Mowi sem er stærsta laxa­sam­steypa Nor­egs, og í lok vik­unn­ar kom í ljós að SalM­ar hafði náð tang­ar­haldi á 50,1% hluta­bréfa. Í kjöl­farið var boðað til hlut­hafa­fund­ar SalM­ar til þess að ganga frá hækk­un hluta­fjár til að standa und­ir kaup­un­um.

Í til­kynn­ingu á vef SalM­ar kem­ur fram að með sam­tvinn­un á starf­semi fyr­ir­tækj­anna sem einkum er í Mið- og Norður-Nor­egi og á Vest­fjörðum Íslands ná­ist betri ár­ang­ur í rekstr­in­um og mögu­leik­ar skap­ist á aukn­ingu á sjálf­bær­an hátt.

Arn­ar­lax hef­ur slátrað fyr­ir bæði fyr­ir­tæk­in í slát­ur­húsi sínu á Bíldu­dal. Þau stóðu sam­eig­in­lega fyr­ir leit að nýj­um hent­ug­um stað vegna vax­andi starf­semi. Ekki náðist sam­komu­lag og keypti Arctic Fish hús­næði í Bol­ung­ar­vík með það að mark­miði að koma þar upp eig­in slát­ur­húsi.

SalM­ar á fyr­ir 51,02% í Arn­ar­laxi á móti ís­lensk­um og norsk­um fjár­fest­um og NRS á 51,28% hlut í Arctic Fish á móti pólsk­um, ís­lensk­um og norsk­um fjár­fest­um.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: