Hafró skilar 84 milljóna afgangi

Skip Hafrannsóknastofnunar við bryggju hjá höfuðstöðvunum í Hafnarfirði. Stofnunin skilaði …
Skip Hafrannsóknastofnunar við bryggju hjá höfuðstöðvunum í Hafnarfirði. Stofnunin skilaði afgangi á síðasta ári sem mun renna í ríkissjóð. mbl.is/sisi

Haf­rann­sókna­stofn­un skilaði 84,4 millj­óna já­kvæða af­komu á ár­inu 2021 sam­kvæmt drög­um að árs­reikn­ingi stofn­un­ar­inn­ar og mun af­kom­un mun vera nýtt til að greiða upp­safnaðan halla fyrri ára, að því er fram kem­ur í til­kynn­ingu á vef stofn­un­ar­inn­ar.  

Fram kem­ur að rekstr­araf­gang­ur stofn­un­ar­inn­ar hafi verið 45,5 millj­ón­ir og að 38,9 millj­ón­ir hafi skilað sér í gegn­um já­kvæða af­komu fjár­fest­ingu.

Sam­kvæmt yf­ir­liti sem birt er með til­kynn­ing­unni má sjá að fjár­veit­ing­ar til stofn­un­ar­inn­ar hækkuðu um 117,9 millj­ón­ir króna og numu rétt rúma 3 millj­arða, en heild­ar­tekj­ur stofn­un­arin­ar námu um 4.222 milj­ón­um króna. Þar af voru 250 milj­ón­ir tekju­færsla frestaðra tekna fyrri ára og voru sér­tekj­ur stofn­un­ar­inn­ar um 948 milj­ón­ir. Þá nam fram­lag rík­is­sjóðs til fjár­fest­inga 204,1 milj­ón­um króna.

Kostnaður vegna starfs­manna hafi dreg­ist sam­an um rúm­ar 122 millj­ón­ir króna milli ára og nam sá kostnaður um 2.573 millj­ón­ir króna á síðasta ári. Liður­inn „ann­ar rekstr­ar­kostnaður“ hækkaði hins veg­ar um tæp­ar 98 millj­ón­ir króna.

mbl.is