Auglýsa 37 störf í einu

Höfuðstöðvar og aðalstarfsstöð Arnarlax á Bíldudal.
Höfuðstöðvar og aðalstarfsstöð Arnarlax á Bíldudal. Ljósmynd/Arnarlax

Arn­ar­lax aug­lýs­ir um helg­ina 37 laus störf, að því er fram kem­ur í Morg­un­blaðinu í dag. Flest eru þau tengd vexti í sjó­eldi fyr­ir­tæk­is­ins á Vest­fjörðum. Talið er að þetta sé með mestu fjölg­un at­vinnu­tæki­færa á Vest­fjörðum í ára­tugi.

Arn­ar­lax er með höfuðstöðvar sín­ar á Bíldu­dal og er með sjó­eldi í Arnar­f­irði, Tálknafirði og Pat­reks­firði. Seiðastöðvar eru á Suður­landi og sölu­skrif­stofa í Reykja­vík.

Mik­il aukn­ing er í starf­sem­inni, að sögn Jóns Garðars Jör­unds­son­ar, fram­kvæmda­stjóra viðskiptaþró­un­ar hjá Arn­ar­laxi. Verið er að nýta eld­is­leyfi fyr­ir­tæk­is­ins sem best.

Jón Garðar seg­ir að störf­in séu mjög fjöl­breytt. Hann nefn­ir að aug­lýst sé eft­ir tíu eld­is­bænd­um auk tveggja svæðis­sjóra yfir eld­inu. Seg­ir hann að störf eld­is­bænda séu eft­ir­sótt af sjó­mönn­um. Þeir fari út á sjó á morgn­ana og snúi aft­ur heim á kvöld­in. Í til­kynn­ingu frá Arn­ar­laxi seg­ir að öll störf­in séu sér­fræðistörf sem bjóði upp á góða tekju­mögu­leika. Auk svæðis­stjór­anna er leitað að manni í eitt stjórn­un­ar­starf til viðbót­ar, það er mannauðsstjóra.

Flest störf­in eru á Vest­fjörðum, eða 31, en einnig nokk­ur störf við seiðaeldi fé­lags­ins á Suður­landi og á sölu­skrif­stofu í Reykja­vík. Ætl­un­in er að bæta við starfs­fólki í fimm mis­mun­andi sveit­ar­fé­lög­um.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: