Óbreytt burðarþolsmat þrátt fyrir athugasemdir

Burðarþols- og áhættumat erfðablöndunar verður ekki breytt þrátt fyrir þær …
Burðarþols- og áhættumat erfðablöndunar verður ekki breytt þrátt fyrir þær athugasemdir sem bárust. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Eng­ar breyt­ing­ar verða gerðar á burðarþols­mati eða áhættumati erfðablönd­un­ar vegna fisk­eld­is í sjókví­um um­hverf­is Ísland þrátt fyr­ir að sjö at­huga­semd­ir bár­ust í um­sagn­ar­ferli.

At­vinnu­vega- og ný­sköp­un­ar­ráðuneytið (nú mat­vælaráðuneytið), í sam­vinnu við Haf­rann­sókn­ar­stofn­un, vann úr þeim at­huga­semd­um sem bár­ust á um­sagn­ar­tím­an­um og var brugðist við ábend­ing­um með breyt­ing­um á um­hverf­is­mats­skýrslu. Hins veg­ar leiða þær breyt­ing­ar ekki til „breyt­inga á burðarþols­mati og áhættumati Haf­rann­sókna­stofn­un­ar,“ að því er fram kem­ur í til­kynn­ingu á vef Haf­rann­sókna­stofn­un­ar.

Þá seg­ir að áhættumat erfðablönd­un­ar sé óbreytt frá því það var staðfest í júní 2020 og á það einnig við burðarþol þeirra tíu fjarða sem Haf­rann­sókna­stofn­un hef­ur nú þegar metið.

„Í um­hverf­is­mats­skýrslu sem og í áætl­un­un­um sjálf­um eru út­listaðar mót­væg­is- og vökt­un­araðgerðir vegna mögu­legra nei­kvæðra um­hverf­isáhrifa,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

mbl.is