Mikill meirihluti íbúa Raufarhafnar er fylgjandi því að látið verði reyna á hugmyndir Bjargar Capital ehf. um uppbyggingu fiskeldis á SR-lóðinni á Raufarhöfn. Kom það fram í óformlegri skoðanakönnun sem hverfisráð Raufarhafnar gerði.
Könnunin var gerð í kjölfar tveggja íbúafunda og kynntu talsmenn Bjargar Capital áform sín á þeim fyrri. Ingibjörg Hanna Sigurðardóttir, formaður hverfisráðsins, túlkar niðurstöðurnar þannig að íbúar séu áhugasamir um að sjá hvað sé raunverulega í boði.
Íbúum var gefinn kostur á að svara spurningu um það hvort þeir væru meðmæltir eða mótfallnir þeim áformum sem Björg Capital hefur kynnt um atvinnuuppbyggingu á SR-lóðinni. Ingibjörg segir að góð þátttaka hafi verið í könnuninni og um 80% þeirra sem þátt tóku verið meðmælt málinu.
Björg Capital, sem tengist Íslenskum verðbréfum, hefur verið í viðræðum við Norðurþing um að fá afnot af lóð sem SR-mjöl hafði á Raufarhöfn. Fiskeldi hefur einkum verið nefnt í því sambandi en margt þarf að ganga upp til þess að af því geti orðið. Íslensk verðbréf eiga hlut í tveimur af smærri fiskeldisfyrirtækjunum á Vestfjörðum.
Spurð um framhaldið segir Ingibjörg að hverfisráðið hafi sent niðurstöður könnunarinnar til sveitarstjórnar Norðurþings. Ákvarðanir séu í höndum hennar, ef samningar á annað borð nást við eigendur Bjargar Capital um afhendingu lóðarinnar. Vonast hún til að íbúar fái að fylgjast áfram með framvindu mála.