„Íbúalýðræði er fótum troðið í boði meirihluta sveitafélagsins, einkafélaga og erlendra fjárfesta er svo stórkostlega galið að ég verð að vekja á því athygli hér, bæði fyrir þing og þjóð,“ sagði Jódís Skúladóttir, þingmaður Vinstri grænna, í umræðu um störf þingsins á Alþingi í dag.
Þar vísar Jódís til undirskriftasöfnunar árið 2020 þar sem 55% kosningabærra íbúa Seyðisfjarðar lögðust gegn áformum 10.000 tonna framleiðslu á laxi í firðinum.
Í byrjun árs greindi mbl.is frá því að Skipulagsstofnun telji að óvissa ríki um áhrif laxeldis á samfélagið í Seyðisfirði. Hún telur að þau geti orðið talsvert eða verulega neikvæð ef ekki næst sátt í nærsamfélaginu.
„Rúmlega helmingur íbúanna hefur sett sig algjörlega andsnúinn þessari uppbyggingu. Hvernig getur það átt sér stað að svona gróflega sé brotið á íbúum og þeirra orð heyrast ekki,“ spurði Jódís.
Í samtali við mbl.is segir Jódís að þegar Seyðfirðingar hafi gengið inn í Múlaþing hafi þeir haldið að þeir myndu öðlast öflugri rödd en í staðinn upplifi þeir sig nú jaðarsetta.
Hún segir að í síðustu viku hafi verið haldinn íbúafundur og var upplifun íbúa að lítið væri á þá hlustað. Því hafi hún ákveðið að vekja athygli á málinu núna.
„Það verður að stíga inn og standa með fólkinu sem hefur liðið nóg eftir skriðuföllin á Seyðisfirði.“