Engar rannsóknir á áhrifum vindmyllugarða

Engar rannsóknir hafa verið framkvæmdar hér á landi á áhrifum …
Engar rannsóknir hafa verið framkvæmdar hér á landi á áhrifum vindmyllugarða á hafi úti á lífríki sjávar. Erlent félag stefnir að 10 gígavatta framleiðslu við Íslandsstrendur. Ljósmynd/Emelysjosasen

Er­lent fjár­fest­inga­fyr­ir­tæki sæk­ist eft­ir því að reisa suðaust­ur af Íslandi 10 gíga­vatta vind­myll­ug­arð sem ætlað er að fram­leiða orku sem flutt verður með sæ­streng til Bret­lands. Eng­ar rann­sókn­ir hafa þó verið fram­kvæmd­ar á áhrif­um vind­myll­ug­arða á hafi úti á líf­ríki sjáv­ar hér á landi.

Norsk­ir út­gerðar­menn hafa gert at­huga­semd­ir við fram­kvæmd­ir af þess­um toga í Nor­egi, eins hef­ur norska haf­rann­sókna­stofn­un­in (Hav­forskn­ings­instituttet) meðal ann­ars mælt gegn vind­myll­u­görðum á hrygn­ing­ar­leiðum og -svæðum.

Þegar blaðamaður leitaði til Haf­rann­sókna­stofn­un­ar vegna stöðu rann­sókna á sviði vind­myll­ug­arða til hafs hér á landi var fátt um svör. „Því miður kem­ur þú að nokkuð tóm­um kofa hvað þetta varðar en ekki hafa verið stundaðar rann­sókn­ir í tengsl­um við vindorku­ver í sjó á Haf­rann­sókna­stofn­un,“ seg­ir í svari stofn­un­ar­inn­ar.

Spurt var meðal ann­ars hvort stofn­un­in taki und­ir full­yrðing­ar norskra koll­ega sinna um hugs­an­leg nei­kvæð áhrif hljóðmeng­un­ar vind­mylla á líf­ríki sjáv­ar. Vís­ar Haf­rann­sókna­stofn­un til skýrslu Norðmann­anna og er vak­in sér­stök at­hygli á að marg­ir af þeim áhrifaþátt­um sem rædd­ir eru eru tald­ir staðbundn­ir.

Ekki er hægt að full­yrða um nei­kvæð áhrif vind­myll­ug­arða á hafi úti á fiski­stofna eða sjáv­ar­spen­dýr að mati Haf­rann­sókna­stofn­un­ar þar sem slíkt fari „eft­ir því hvar vindorku­ver­in myndu rísa, hversu víðtækt raskið yrði og á hvaða teg­und­ir fiska væri verið að horfa í þessu sam­hengi, en það má benda á það að í ein­hverj­um til­fell­um geta einnig komið fram „já­kvæð“ áhrif af upp­bygg­ingu í sjó, þ.e.a.s. að mann­gerðir strúkt­úr­ar geta skapað búsvæði fyr­ir teg­und­ir sem við mynd­um telja ákjós­an­leg­ar. Líkt og bent er þó á í þess­ari skýrslu þá þurfa ákv­arðanir um upp­bygg­ingu vindorku­vera að taka mið af því raski og áhrif­um sem slík­ar fram­kvæmd­ir geta haft og hafa ber sér­stak­lega í huga far­leiðir fugla, hvala og fiska, búsvæði sjáv­ar­líf­vera og hrygn­ing­ar­svæði nytja­stofna.“

Tel­ur Haf­rann­sókna­stofn­un að ráðlegt sé að hefja upp­bygg­ingu vind­mylla til hafs hér á landi án frek­ari rann­sókna á áhrif­um á líf­ríki sjáv­ar? „Upp­bygg­ingu vindorku­vera á hafi úti þyrfti að skoða m.t.t. áhrifa á um­hverfi og líf­ríki (um­hverf­is­mat) en það á að sjálf­sögðu við um all­ar fram­kvæmd­ir að þeirri stærðargráðu sem hér er fjallað um.“

Stefnt að 10 gíga­vött­um

Ekki eru marg­ir að vinna að því að koma upp vind­myll­u­görðum á hafi úti hér á landi, en fé­lagið Hecta­te In­depend­ent Power (HIP) er með há­leit áform um að reisa vind­myll­ug­arða við Íslands­strend­ur sem fram­leiða 10 gíga­vött sem seld verða gegn­um sæ­streng til Bret­lands.

Fyrsta skrefið í þess­um áætl­un­um er að koma upp vind­myll­um suðaust­ur af Íslandi und­ir merkj­um Kára energy. Verði af áformun­um verða vind­myll­ug­arðarn­ir tveir með um 85 vind­myll­ur hvor og fram­leiða sam­tals 2.000 mega­vött. Áætlan­ir miða að því að garðarn­ir verði um 20 til 40 kíló­metra frá landi.

HIP er í eigu banda­ríska orku­fyr­ir­tæk­is­ins Hecta­te Energy LLC og breska orku­fyr­ir­tæk­is­ins In­depend­ent Power Corporati­on PLC.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:

Bloggað um frétt­ina