Kröfu Arnarlax um ógildingu hafnað

Háafell og Arnarlax hafa deilt vegna fiskeldis í Ísafjarðardjúpi. Kröfu …
Háafell og Arnarlax hafa deilt vegna fiskeldis í Ísafjarðardjúpi. Kröfu Arnarlax um ógildingu rekstrarleyfi Háafells hefur verið hafnað. mbl.is/Helgi Bjarnason

Úrsk­urðar­nefnd um­hverf­is- og auðlinda­mála hef­ur hafnað kröf­um Arn­ar­lax og nokk­urra nátt­úru­vernd­ar­sam­taka um að ógilda ákv­arðanir Mat­væla­stofn­un­ar og Um­hverf­is­stofn­un­ar um út­gáfu rekstr­ar- og starfs­leyfa til handa Háa­felli ehf. fyr­ir kyn­slóðaskipt lax­eldi í sjókví­um í Ísa­fjarðar­djúpi.

Arn­ar­lax krafðist þess jafn­framt að lagt yrði fyr­ir stofn­an­irn­ar að af­greiða um­sókn­ir um rekstr­ar- og starfs­leyfi fyr­ir eldið í þeirri tímaröð sem fram­kvæmd­araðilar skiluðu mats­skýrsl­um sín­um inn til Skipu­lags­stofn­un­ar.

Málið á ræt­ur sín­ar að rekja til laga­breyt­inga árið 2019. Þá var skipt um fyr­ir­komu­lag leyf­is­veit­inga fyr­ir sjókvía­eldi. Lög­in gera ráð fyr­ir að um­sókn­ir um rekstr­ar­leyfi fyr­ir sjókví­ar á svæðum sem met­in hafa verið til burðarþols myndu halda gildi sínu þrátt fyr­ir ákvæði um nýtt kerfi. Gerð var sú krafa að um­sókn­ir héldu aðeins gildi sínu að mati á um­hverf­isáhrif­um væri lokið fyr­ir gildis­töku eða lögð hefði verið fram frummats­skýrsla.

Arn­ar­lax fær ekk­ert

Aðeins eru til út­hlut­un­ar nú 12 þúsund tonn sem er há­markið vegna áhættumats Haf­rann­sókna­stofn­un­ar. Mat­væla­stofn­un for­gangsraðaði um­sókn­um eft­ir því hvenær um­sókn­irn­ar væru full­gilt­ar í meðför­um Skipu­lags­stofn­un­ar. Háa­fell, dótt­ur­fé­lag HG á Ísaf­irði, var fyrst í röðinni og fékk á síðasta ári leyfi fyr­ir þeim 6.800 tonn­um sem fyr­ir­tækið sótti um. Arctic Fish er annað í röðinni og átti að fá 5.200 af þeim 8 þúsund tonn­um sem fyr­ir­tækið sótti um. Arn­ar­lax fær ekk­ert af þeim 10 þúsund tonn­um sem sótt var um. Fyr­ir­tækið get­ur aft­ur á móti alið ófrjó­an lax í Djúp­inu, ef það svo kýs. Fjórða fyr­ir­tækið, Há­brún, komst ekki að borðinu.

Úrsk­urðar­nefnd­in taldi að ekki væru þeir form- eða efn­is­ann­mark­ar á und­ir­bún­ingi eða meðferð ákv­arðana Mat­væla­stofn­un­ar eða Um­hverf­is­stofn­un­ar að ógild­ingu varðaði og var kröf­um Arn­ar­lax því hafnað.

Vænt­an­lega geta stofn­an­irn­ar nú af­greitt um­sókn Arctic Fish. Háa­fell hef­ur und­ir­búið sjó­eldi á laxi og set­ur út fyrstu laxa­seiðin í vor. Er það liður í að skipta úr regn­bogasil­ungi yfir í lax.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: