„Einstakt um borð í togara í ralli“

Rannsóknateymi Hafrannsóknastofnunar í borðsalnum á Gullver undir mynd af Vigdísi …
Rannsóknateymi Hafrannsóknastofnunar í borðsalnum á Gullver undir mynd af Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta. Talið frá vinstri: Hrefna Zoega, Ása Hilmarsdóttir, Klara Jakobsdóttir leiðangursstjóri, Ragnhildur Magnúsdóttir og Sólrún Sigurgeirsdóttir Ljósmynd/Síldarvinnslan

„Hér um borð eru fimm starfs­menn frá Haf­rann­sókna­stofn­un og það vill svo til að það eru allt kon­ur. Ég held að það sé ein­stakt um borð í tog­ara í ralli,“ er haft eft­ir Steinþóri Hálf­dan­ar­syni, skip­stjóra á Gull­ver NS, á vef Síld­ar­vinnsl­unn­ar. „Mönn­um lík­ar vel að hafa þær hér um borð. Hér er allt í sátt og sam­lyndi. Nú höld­um við inn á Seyðis­fjörð í kvöld og það er gert ráð fyr­ir að skipið haldi síðan til veiða á sunnu­dag,“ seg­ir Steinþór.

Gull­ver hef­ur und­an­farið tekið þátt í tog­ar­aralli Haf­rann­sókna­stofn­un­ar sem hófst í byrj­un mars. Byrjað var á hinu svo­kallaða norðaust­ur­svæði. Fyrst var togað á syðsta hluta svæðis­ins og var skipið komið norður á Héraðsflóa þegar haldið var til hafn­ar á Seyðis­firði, en þá var búið að toga á 73 af þeim 151 stöðvum sem til stóð.

Gullver NS kom til Seyðisfjarðar þegar rallið var hálfnað.
Gull­ver NS kom til Seyðis­fjarðar þegar rallið var hálfnað. Ljós­mynd/​Síld­ar­vinnsl­an/Ó​mar Boga­son

Í kjöl­far þess að var haldið í átt að Digra­nes­flak­inu og síðan haldið áfram vest­ur und­ir Kol­beins­ey.

„Ég held að megi segja að það gangi bara vel,“ seg­ir Steinþór en síðasta holið af 151 var tekið í morg­un þegar skipið var á Bakka­flóa­dýp­inu í vindi og sól­skini. „Við hóf­um rallið 1. mars, fór­um í land þegar við vor­um hálfnaðir og síðan þurft­um við að skutla veik­um skip­verja í land. Ann­ars hef­ur allt gengið eft­ir bók­inni og það hafa ekki verið telj­andi taf­ir vegna veðurs.“

mbl.is