Veiðifélag fær heimild fyrir 40 tonna fiskeldi

Veiðifélag Ytri-Rangá hefur fengið heimild til 40 tonna seiðaeldi í …
Veiðifélag Ytri-Rangá hefur fengið heimild til 40 tonna seiðaeldi í Borgarbyggð. mbl.is/Einar Falur Ingólfsson

Veiðifé­lag Ytri-Rangár hef­ur fengið rekstr­ar­leyfi sem heim­il­ar 40 tonna há­marks­líf­massa á seiðaeldi á laxi til stang­veiða að Húsa­fellslandi í Borg­ar­byggð, að því er fram kem­ur í til­kynn­ingu sem birt hef­ur verið á vef Mat­væla­stofn­un­ar.

Þar seg­ir að gild­istaka rekstr­ar­leyf­is­ins verður staðfest þegar út­tekt Mat­væla­stofn­un­ar hef­ur farið fram í starfs­stöð fé­lags­ins. Þá er starf­sem­in einnig háð starfs­leyfi Um­hverf­is­stofn­un­ar.

Um­sókn um leyfið hafi borist Mat­væla­stofn­un 8. des­em­ber 2020 og var til­laga að rekstr­ar­leyf­inu aug­lýst 11. nóv­em­ber 2021 og var frest­ur til að skila inn at­huga­semd­um til 3. des­em­ber 2021.

mbl.is