Fimm þúsund seiði fengrana eru nú í tilraunaeldi á vegum Matís og eru gerðar tilraunir með notkun á nýju fóðri. Ekki er ætlunin að ala fiskinn upp í matarstærð, heldur verða seiðin alin upp í nokkurra gramma þyngd í lokuðu kerfi, en þá verður þeim fargað, að því er fram kemur í umfjöllun Morgunblaðsins.
Fengrani er ránfiskur sem lifir í ám og vötnum. Hann vex hratt og getur orðið yfir 300 kíló að þyngd. Nokkuð er um eldi á fengrana og ef vel gengur í þróun fóðurs fyrir seiðin gæti það orðið til að auka slíkt eldi.
Sérfræðinganefnd um framandi lífverur fjallaði um innflutning á seiðunum og komst að þeirri niðurstöðu að miðað við umfang innflutningsins, eldi og förgun að tilraun lokinni væri lítil hætta á að innflutningurinn myndi ógna villtum vistkerfum á Íslandi.
Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag.