Ákveðið hefur verið að stækka hús Arctic Fish við höfnina í Bolungarvík til að koma þar upp eigin laxasláturhúsi. Fyrirtækið ætlar að ríflega tvöfalda húsið og stefnir að því að hefja slátrun á næsta ári. Stein Ove Tveiten, forstjóri Arctic Fish, segir að aðstaðan í Bolungarvík sé stórt skref í framþróun fyrirtækisins. Þetta sé mikil fjárfesting en hún skapi einnig mikil tækifæri.
Fyrst og fremst sé hún mikilvæg til að fyrirtækið hafi næga afkastagetu í slátrun og geti náð niður kostnaði á hvert framleitt kíló.
Nánar má lesa um málið í Morgunblaðinu í dag.