Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur karlmanni á sjötugsaldri fyrir kynferðisbrot gegn sjö ungum stúlkum. Meint brot voru framin í fyrra í gegnum einkaskilaboð á samfélagsmiðlinum Snapchat.
Í tvö skipti gerði maðurinn tilraun til að mæla sér mót við stúlkurnar í kynferðislegum tilgangi.
Maðurinn hefur verið í gæsluvarðhaldi frá því í byrjun desember en þá kom fram að hann væri grunaður um að hafa sent börnum á aldrinum 11 til 16 ára skilaboð af kynferðislegum toga.
Í gæsluvarðhaldsúrskurði kom fram að hann væri grunaður í 22 málum.
Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn á kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, sagði í samtali við mbl.is í byrjun febrúar að meintum brotaþolum, þ.e. börnum sem talið er að maðurinn hafi brotið á, hafi fjölgað um 6-7 frá því áður og nú sé maðurinn grunaður um brot gegn 25-30 börnum.
Auk þess fara forráðamenn stúlknanna fram á að maðurinn greiði þeim miskabætur, samtals 8,2 milljónir króna auk vaxta.