Sex bátar taka þátt í netarallinu

Netarall HAfrannsóknunarstofnunar hófst í gær og taka sex bátar þátt.
Netarall HAfrannsóknunarstofnunar hófst í gær og taka sex bátar þátt. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun/Valur Bogason

Netarall Hafrannsóknastofnunar hófst í gær og er markmiðið að safna upplýsingum um lengdar- og þyngdasamsetningu á helstu hrygningarsvæðum þorsks, auk þess sem rannsakaður er kynþroski og vöxtur eftir aldri.

Fram kemur á vef stofnunarinnar að einnig sé mælt árlegt magn kynþroska þorsks sem fæst í þorskanet á hrygningarstöðvum og meta breytingar í gengd hrygningarþorsks á mismunandi svæðum.

Alls taka sex bátar þátt að þessu sinni og eru það Magnús SH í Breiðafirði, Saxhamar SH í Faxaflóa, Þórsnes SH frá Reykjanesi að Þrídröngum, Friðrik Sigurðsson ÁR frá frá Þrídröngum að Skeiðarárdjúpi, Sigurður Ólafsson SF frá Meðallandsbugt að Hvítingum og Hafborg EA fyrir norðurlandi.

„Um 45-60 trossur eru lagðar á hverju svæði og er þeim dreift innan svæða á helstu hrygningarslóðir þorsks. Á hverju svæði er helmingur lagður í fyrirfram ákveðna punkta, svokallaðar fastar stöðvar en hinn helmingurinn er lausar stöðvar sem skipstjórar ákveða hvar skulu lagðar,“ segir á vef Hafrannsóknastofnunar.

:
mbl.is