Lægri ráðjöf og ákall um bætt eftirlit

Grásleppu landað á Húsavík í fyrra.
Grásleppu landað á Húsavík í fyrra. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

Haf­rann­sókna­stofn­un ráðlegg­ur að veiðar á grá­sleppu fisk­veiðiárið 2021/​2022 verði ekki meiri en 6.972 tonn, að því er fram kem­ur í til­kynn­ingu á vef stofn­un­ar­inn­ar. Um er að ræða tæp­lega 23% sam­drátt í ráðlögðum há­marks­afla frá síðasta ári er ráðgjöf­in nam 9.040 tonn­um.

„Ráðgjöf­in bygg­ir að mestu á stofn­vístölu úr stofn­mæl­ingu botn­fiska í mars 2022 en hún var ná­lægt lang­tíma meðaltali. Stofn­vísi­töl­ur hrogn­kelsa sveifl­ast milli ára sem end­ur­spegl­ar að hluta til óvissu í mæl­ing­un­um. Vegna þessa veg­ur stofn­vísi­tala sama árs 70% á móti 30% vægi vísi­tölu fyrra árs við út­reikn­ing ráðlagðs há­marks­afla, en vísi­tala síðasta árs var sú hæsta frá upp­hafi mæl­inga 1985,“ seg­ir í til­kynnign­unni.

Bæta þurfi skrán­ingu og eft­ir­lit

Sam­hliða ráðgjöf­inni nú legg­ur Haf­rann­sókna­stofn­un til að upp­hafafla­mark grá­sleppu­vertíðar næsta árs verði 1.627 tonn en end­an­leg ráðgjöf vegna veiðanna mun liggja fyr­ir að lok­inni stofn­mæl­ingu vorið 2023.

„Jafn­framt ít­rek­ar stofn­un­in að bæta þurfi skrán­ingu meðafla og eft­ir­lit með brott­kasti við grá­sleppu­veiðar,“ seg­ir í ráðgjaf­ar­skjali stofn­un­ar­inn­ar.

mbl.is