„Stór áfangi í sögu hafrannsókna á Íslandi“

Þorsteinn Sigurðsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, segir samninga um nýtt hafrannsóknaskip marka …
Þorsteinn Sigurðsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, segir samninga um nýtt hafrannsóknaskip marka tímamót. mbl.is/Arnþór Birkisson

„Þetta er stór áfangi í sögu haf­rann­sókna á Íslandi,“ seg­ir Þor­steinn Sig­urðsson, for­stjóri Haf­rann­sókna­stofn­un­ar, en síðdeg­is í dag und­ir­rita hann, Bjarni Bene­dikts­son fjár­málaráðherra og Svandís Svavars­dótt­ir mat­vælaráðherra samn­ing um smíði nýs haf­rann­sókna­skips.

Þor­steinn rifjar upp að farið hafi verið að tala um smíði nýs skips upp úr alda­mót­um, en þá hafi verið ákveðið að gera nauðsyn­leg­ar breyt­ing­ar á rann­sókna­skip­inu Bjarna Sæ­munds­syni. Þær hafi átt að duga til árs­ins 2012, en nú tíu árum síðar sé komið að und­ir­rit­un samn­inga.

Áætlað er að smíði skips­ins taki 30 mánuði og að það komi til lands­ins haustið 2024.

Nýtt hafrannsóknaskip mun vera hið glæsilegasta.
Nýtt haf­rann­sókna­skip mun vera hið glæsi­leg­asta. Mynd/​Haf­rann­sókna­stofn­un

Til­boð upp á 4,8 millj­arða

Áhersla hef­ur verið lögð á að skipið verði um­hverf­i­s­vænt og spar­neytið og verður það 70 metr­ar á lengd og tólf metr­ar á breidd. For­hönn­un var í hönd­um Skipa­sýn­ar, en unnið hef­ur verið að hönn­un og síðan útboðsferli í um þrjú ár. Skipið verður smíðað í Astilleros Armón-skipa­smíðastöðinni í Vigo á Spáni. Fyr­ir­tækið bauð 33,45 millj­ón­ir evra í smíðina, jafn­v­irði 4,8 millj­arða ís­lenskra króna.

Ákvörðun um smíði skips­ins var tek­in 2018, en í til­efni 100 ára full­veldisaf­mæl­is Íslands samþykkti Alþingi í júní það ár þings­álykt­un um að sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra væri falið að hefja und­ir­bún­ing að smíði haf­rann­sókna­skips sem ætlað væri að koma í stað rs. Bjarna Sæ­munds­son­ar.

Skipið verður vel búið.
Skipið verður vel búið. Mynd/​Haf­rann­sókna­stofn­un
Mybd/​Haf­rann­sókna­stofn­un
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:

Bloggað um frétt­ina