Þorsteinn Sigurðsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra skrifuðu í gær undir samning um smíði nýs hafrannsóknaskips, ásamt fulltrúa skipasmíðastöðvarinnar Astilleros Armón, en skipið verður smíðað í stöðinni í Vigo á Spáni.
Skipinu er ætlað að koma í stað rannsóknaskipsins Bjarna Sæmundssonar sem smíðað var 1970 af Schiffbau-gesellschaft í Bremerhaven í því ríki sem þá nefndist Vestur-Þýskaland.
Gert er ráð fyrir að nýtt rannsóknaskip komi tilbúið til Íslands 2024. Tilboð Armón í smíðin nam 33,45 milljónum evra, jafnvirði 4,8 milljarða íslenskra króna.