Svandís kynnti sér fiskeldi í Færeyjum

Svandís Svavarsdóttur skoðaði fiskeldi í Færeyjum í vikunni.
Svandís Svavarsdóttur skoðaði fiskeldi í Færeyjum í vikunni. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Svandís Svavars­dótt­ir, mat­vælaráðherra, hef­ur verið í Fær­eyj­um frá því á mánu­dag ásamt vinnu­hópi úr ráðuneyt­inu í þeim til­gangi að kynna sér fisk­eldi Fær­ey­inga. Á fund­um hafa einnig verið rædd­ir mögu­leik­ar á sam­vinnu ríkj­ann á þessu sviði, að því er fram kem­ur á vef stjórn­ar­ráðsins.

„Það hef­ur verið verið lær­dóms­ríkt að fá inn­sýn í reynslu okk­ar góðu granna. […] Fær­ey­ing­ar hafa meðal ann­ars unnið öt­ul­lega að því að auka gæði og sjálf­bærni fram­leiddr­ar vöru þannig að fær­eysk út­flutn­ings­fram­leiðsla sé í hæsta gæðaflokki og skila þannig meiri verðmæt­um í þjóðarbúið. Með því að fjár­festa í rann­sókn­um í grein­inni hafa Fær­ey­ing­ar lagt grunn að gríðarleg­um fram­förum,” er haft eft­ir Svandísi.

Í Fær­eyj­um fundaði hún með Magn­us Rasmus­sen, iðnaðarráðherra Fær­eyja, sem fer með mál­efni fisk­eld­is og Árna Ska­ale, sjáv­ar­út­vegs­ráðherra lands­ins, ásamt því að heim­sækja Hav­stovu, syst­ur­stofn­un Haf­rann­sókna­stofn­un­ar, og Vørn, syst­ur­stofn­un Fi­aski­stofu.

Marita Rasmussen, forstjóri Havstovan, Svandís Svavarsdótttir ,matvælaráðherra, og Árni Skaale …
Ma­rita Rasmus­sen, for­stjóri Hav­stov­an, Svandís Svavars­dóttt­ir ,mat­vælaráðherra, og Árni Ska­ale sjáv­ar­út­vegs­ráðherra Fær­eyja. Ljós­mynd/​Stjórn­ar­ráðið
mbl.is