Fékk flotkúlu í höfuðið og slasaðist

Sjómaður með skíðahjálms-gerðina af öryggishjálmi. Rannsóknanefnd samgönguslysa segir mikilvægt að …
Sjómaður með skíðahjálms-gerðina af öryggishjálmi. Rannsóknanefnd samgönguslysa segir mikilvægt að gefa ekki afslátt á notkun öryggisbúnaðar. Myndin tengist fréttinni ekki beint. mbl.is/Árni Sæberg

Þegar Silfurborg SU 22 var á dragnótarveiðum á Austfjarðamiðum í byrjun september í fyrra hlaut skipverji um borð höfuðáverka eftir að hafa fengið flotkúlu í höfuðið. Afleiðingar slyssins hefðu líklega verið minni ef hann hefði verið með hjálm.

Atvikið átti sér stað þegar skipverjar voru búnir að taka nótina inn og hreinsa úr henni aflann. Þegar þeir voru að leggja niður nótina féll ein flotkúlan á henni í höfuðið á einum skipverjanum sem fékk skurð á höfuðið. Siglt var með hinn slasaða í land.

Rannsóknanefnd samgönguslysa, siglingasvið, bendir á mikilvægi þess að útgerð og skipstjórar gefi ekki afslátt á notkun persónulegs öryggisbúnaðar.

Í nýlegu áliti nefndarinnar segir að slíkur búnaður hefði að líkindum dregið úr alvarleika atviks er flotkúla féll í höfuð sjómanns, sem ekki var með öryggishjálm.

Fyrirmæli hunsuð

Við rannsókn kom m.a. fram að hinn slasaði var ekki lögskráður á skipið. Í lokaskýrslu er haft eftir skipstjóra að fyrirmæli hans til áhafnar um að nota öryggishjálma hafi ítrekað verið hunsuð.

Haft er eftir sjómanninum sem slasaðist að honum hafi í upphafi ráðningar verið bent á öryggishjálma og staðsetningu þeirra en þeir hafi að jafnaði ekki verið notaðir.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: