Met slegin í verði á eldislaxi

mbl.is/Helgi Bjarnason

Mikl­ar verðhækk­an­ir hafa orðið á norsk­um eld­islaxi að und­an­förnu og náði meðal­verð á mörkuðum í síðustu viku (viku 14) 88,12 norsk­um krón­um á kíló, jafn­v­irði 1.295 ís­lensk­um krón­um. Meðal­verð var því orðið 33,38% hærra en fyr­ir 12 vik­um, 3,14% hærra en fyr­ir  fjór­um vik­um og 3,11% hærra en meðal­verð viku 13.

Þetta má lesa úr þróun lax­vísi­tölu Nas­daq sem er vegið meðaltal viku­legs til­kynnts sölu­verðs og sam­svar­andi magns fersks slægðs atlants­hafslax í efsta gæðaflokki.

Ef litið er til lax í slát­ur­stærð (3-6 kíló) nam meðal­verð á mörkuðum 88,64 norsk­um krón­um, jafn­v­irði 1.302 ís­lenskra króna. Um er að ræða 34,73% hækk­un á meðal­verði und­an­farn­ar 12 vik­ur, 3,85% hækk­un á fjór­um vik­um og 2,62% verðhækk­un á einni viku.

Nýtt met í verði á eld­islaxi var sett í síðustu viku sam­kvæmt heim­ild­um Und­ercur­rent News sem herma að verð hafi jafn­vel farið yfir 100 norsk­ar krón­ur á kíló í ein­stök­um til­fell­um, eða yfir 1.469 ís­lenskra krón­ur.

mbl.is