Fimm kílóa lax á 8.000 krónur

Lífræn vottun fyrir laxeldi Fiskeldis Austfjarða í sjókvíum á Austfjörðum …
Lífræn vottun fyrir laxeldi Fiskeldis Austfjarða í sjókvíum á Austfjörðum skapar fyrirtækinu ný sóknarfæri á markaði í Evrópu. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Heims­markaðsverð á laxi hef­ur hækkað skarpt á und­an­förn­um vik­um og var í síðustu viku, sam­kvæmt upp­lýs­ing­um sem birt­ar voru í gær, komið í tæp­ar 109 krón­ur norsk­ar á kíló. Það sam­svar­ar tæp­um 1.600 krón­um ís­lensk­um. Ef aðeins er litið til 3-6 kílóa fisks er verðið komið í tæp­ar 110 krón­ur norsk­ar. Þýðir það að rúm­ar átta þúsund krón­ur ís­lensk­ar fást fyr­ir fimm kílóa lax.

Mesta eft­ir­spurn eft­ir laxi er fyr­ir jól og páska en fell­ur þess á milli. Heims­markaðsverðið er því oft sveiflu­kennt og er hæst fyr­ir þess­ar stór­hátíðir. Verðið hef­ur þó aldrei í sög­unni farið jafn hátt og nú og raun­ar aldrei áður yfir 100 krón­ur norsk­ar.

Minna í sjókví­un­um

Sér­fræðing­ar telja að skýr­ing­anna megi fyrst og fremst leita í minni líf­massa í sjó­eldi en reiknað var með sem þýðir að fram­leiðslan verður minni en markaður­inn hef­ur bú­ist við. Sig­urður Pét­urs­son, stofn­andi Lax-inn, fræðslumiðstöðvar fisk­eld­is, seg­ir að menn hafi talið að fram­leiðslan yrði svipuð og á síðasta ári en minni líf­massi bendi til sam­drátt­ar. Smá­veg­is sam­drátt­ur verður í fram­leiðslu í Nor­egi en Sig­urður seg­ir að mest muni um minni líf­massa og minni meðalþyngd laxa sem slátrað er úr sjókví­um í Síle.

Mynd/​mbl.is

Þró­un­in óviss

Miðað við þróun eft­ir­spurn­ar og verðs á und­an­förn­um árum má bú­ast við að verðið lækki aft­ur nú eft­ir páska. Sig­urður seg­ir að ekki séu all­ir sér­fræðing­ar sann­færðir um að það ger­ist strax, jafn­vel ekki fyrr en í sum­ar, en tek­ur fram að þetta séu aðeins vanga­velt­ur. Bend­ir hann á að vinnslu­fyr­ir­tæk­in þurfi fisk til að standa við samn­inga sína.

Á móti komi að bú­ast megi við því að lax detti út af mat­seðlum fólks þegar verðið fer yfir ákveðin mörk. Hins veg­ar hafi all­ur mat­ur verið að hækka í verði, líka vara sem gæti komið í staðinn fyr­ir lax­inn, og nefn­ir sem dæmi verðþróun á þorski og nauta­kjöti.

Sigurður Pétursson.
Sig­urður Pét­urs­son. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: