Segir að forsætisráðherra sé hætt í pólitík

Kristrún Frostadóttir þingmaður Samfylkingarinnar og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Kristrún Frostadóttir þingmaður Samfylkingarinnar og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. Samsett mynd

Kristrún Frostadóttir þingmaður Samfylkingarinnar segir það virðast sem svo að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sé hætt í pólitík. Þetta kom fram í ræðu hennar á Alþingi í dag þar sem hún var afar gagnrýnin á bæði Framsóknarflokkinn og Vinstri græna sem hún segir hafa afsalað sér völdum til Sjálfstæðisflokksins.

„Virðulegi forseti. Það skiptir máli hver stjórnar sögðu Vinstri grænir í síðustu kosningum. Og margir spurðu sig hvort það væri ekki bara best að kjósa Framsókn. Þessir flokkar virðast aftur á móti hafa afsalað sér áhrifum til Sjálfstæðisflokksins. Hér er það hæstvirtur fjármálaráðherra sem ræður, nema þegar illa gengur. Þá virðist hann ekkert vald hafa. Hans undirstofnanir sjá um þetta allt saman,“ sagði Kristrún.

Verði að hætta meðvirkni

Hún segir bæði Vinstri græna og Framsókn hafa gengið inn í fullmótað kerfi Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn og að hendur allra séu bundnar. Þá ætli enginn að bera ábyrgð.

„Hæstvirtur forsætisráðherra virðist hætt í pólitík. Hún les bara þurrar yfirlýsingar um bankasöluna sem virðast skrifaðar af lögfræðingum í ráðuneytinu. Svo mætir hæstvirtur fjármálaráðherra með blússandi hroka eftir páskafrí og er kominn með nýja nálgun. Afneita, afneita, afneita – já það skiptir máli hver stjórnar en hér eru það ekki Vinstri græn og það virðist engu máli hafa skipt þó fólk hafi kosið framsókn.“

Hún endaði þó ræðu sína á að segja að flokkarnir hafi enn tækifæri til að sýna að þau séu ekki hætt í pólitík með því að hætta „þessari meðvirkni“ með Sjálfstæðisflokknum.

mbl.is