393 tonna veiði en engar upplýsingar um stofnstærð

Dágóðum rækjuafla landað.
Dágóðum rækjuafla landað. mbl.is/Ómar Óskarsson

Haf­rann­sókna­stofn­un ráðlegg­ur að afli rækju­veiða við Snæ­fells­nes verði ekki meiri en 393 tonn, en ráðgjöf­in er sú sama og á síðasta ári þar sem eng­ar upp­lýs­ing­ar liggja fyr­ir um stofn­stærð rækju á þess­um slóðum.

Þetta kem­ur fram í ráðgjaf­ar­skýrslu stofn­un­ar­inn­ar sem varðar veiðitíma­bilið 1. maí næst­kom­andi til 15. mars 2023.

„Eng­ar nýj­ar upp­lýs­ing­ar liggja fyr­ir um stofn­stærð rækju við Snæ­fells­nes þar sem ekki voru farn­ir stofn­mæl­inga­leiðangr­ar árin 2021 og 2022. Því er ekki hægt að upp­færa ráðgjöf­ina sem bygg­ir aðferðarfræði Alþjóðahaf­rann­sókn­aráðsins fyr­ir stofna þar sem ekki er hægt að fram­kvæma töl­fræðilegt stofn­mat. […] Ráðgjöf­in í ár er því sú sama og fyr­ir síðasta fisk­veiðiár. Varúðar­lækk­un var beitt árið 2021 og er ekki beitt í ár,“ seg­ir í ráðgjaf­ar­skýrsl­unni sem birt hef­ur verið á vef Haf­rann­sókna­stofn­un­ar.

60% sam­drátt­ur á ára­tug

„Haf­rann­sókna­stofn­un ráðlegg­ur í sam­ræmi við varúðarsjón­ar­mið að afli á svæðinu við Snæ­fells­nes frá 1. maí 2022 til 15. mars 2023 verði ekki meiri en 393 tonn,“ seg­ir í niður­lagi skýrsl­unn­ar.

Fyr­ir tíu árum, fisk­veiðiárið 2012/​2013, nam ráðgjöf Haf­rann­sókna­stofn­un­ar 1.000 tonn­um en er því nú 60% minni. Ráðgjöf­in hef­ur sveifl­ast nokkuð á þessu tíma­bil­in en hef­ur verið inn­an við 500 tonn frá 2018/​2019.

mbl.is