Slátrað úr kvíum á Sigmundarhúsum

Unnið við eldiskvíar Laxa fiskeldis í Reyðarfirði.
Unnið við eldiskvíar Laxa fiskeldis í Reyðarfirði. mbl.is/Helgi Bjarnason

Veir­an sem get­ur valdið blóðþorra í laxi hef­ur greinst í einu sýni úr kví­um Laxa fisk­eld­is á Sig­mund­ar­hús­um í Reyðarf­irði. Eng­in merki eru um að fisk­ur sé veik­ur. Eigi að síður hef­ur fyr­ir­tækið ákveðið í varúðarskyni að slátra öll­um laxi upp úr kví­um þar en þar eru alin seiði frá því í haust, alls um millj­ón fisk­ar að meðaltali inn­an við hálft kíló að þyngd.

„Auðvitað eru þetta ekki góðar frétt­ir en við erum með allt til staðar sem þarf til að bregðast við svona áföll­um og koma í veg fyr­ir meiri út­breiðslu,“ seg­ir Guðmund­ur Gísla­son, for­stjóri Ice Fish Farm, sem varð til með sam­ein­ingu Fisk­eld­is Aust­fjarða og Laxa fisk­eld­is.

Eitt sýni af þúsund­um já­kvætt

ISA-veir­an sem get­ur valdið blóðþorra fannst í kví­um Laxa á Gripalda í Reyðarf­irði í nóv­em­ber. Fisk­ur var veik­ur í að minnsta kosti einni kví. Fyr­ir­tækið ákvað að slátra öll­um laxi á staðnum og hvíla svæðið til að draga úr hættu á því að veir­an bær­ist í aðrar kví­ar. Gísli Jóns­son, dýra­lækn­ir fisk­sjúk­dóma hjá Mat­væla­stofn­un, seg­ir að þá hafi verið gerð skimun­ar­áætl­un sem unnið hafi verið eft­ir síðan. Tek­in hafi verið sýni í hverj­um mánuði úr öll­um kví­um fyr­ir­tækj­anna allt suður í Beru­fjörð. Sér­stök áhersla hafi verið lögð á Sig­mund­ar­hús sem eru í 2-3 kíló­metra fjar­lægð frá Gripalda.

Gísli seg­ir að öll sýni hafi reynst nei­kvæð þar til í þess­um mánuði. Í fjölda sýna sem tek­in voru um pásk­ana hafi eitt sýni reynst já­kvætt og hafi það verið staðfest með raðgrein­ingu á rann­sókn­ar­stofu í Þýskalandi. Niður­stöðurn­ar þaðan bár­ust síðdeg­is í fyrra­dag.

Seg­ir Gísli að tek­in hafi verið 1.100 sýni á þess­um stað og aðeins þetta eina sýni greinst já­kvætt. Fisk­ur­inn sé við bestu heilsu, éti, vaxi og dafni vel.

Nán­ar er fjallað um málið í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: