Árni Beinteinn og Íris Rós að skilja

Árni Beinteinn Árnason og Íris Rós Ragnhildardóttir eru að skilja.
Árni Beinteinn Árnason og Íris Rós Ragnhildardóttir eru að skilja.

Leikarinn Árni Beinteinn Árnason og tónskáldið Íris Rós Ragnhildardóttir eru að skilja. Þetta herma öruggar heimildir Smartlands. 

Árni og Íris ætluðu að halda brúðkaupið sitt sumarið 2021 en á brúðkaupsdaginn sjálfan vildi svo óheppilega til að Íris hafði nýverið fengið kórónuveiruna og var í einangrun á brúðkaupsdaginn. Árni kom henni á óvart og hélt tónleika með leikurum og tónlistarfólki og varð því dagurinn gleðilegur fyrir þau bæði.

Árni er útskrifaður af leikarabraut í Listaháskóla Íslands og hefur meðal annars farið með hlutverk í Benedikt Búálfi og Skugga Sveini hjá Leikfélagi Akureyrar. Íris er útskrifuð sem tónskáld frá sama skóla og hafa þau Árni meðal annars gefið út plötuna Í eigin heimi. Saman eiga þau einn son, Aron Beintein, en hann er fæddur árið 2020. 

Smartland óskar þeim Árna og Írisi góðs gengis á þessum tímamótum. 

mbl.is