7,6 milljarða hagnaður hjá Bakkafrost

Sjókvíar Bakkafrosts í Kaldbaksfirði í Færeyjum. Fyrirtækið slátraði samanlagt 21.500 …
Sjókvíar Bakkafrosts í Kaldbaksfirði í Færeyjum. Fyrirtækið slátraði samanlagt 21.500 tonnum á fyrsta ársfjórðungi í Færeyjum og Skotlandi. Ljósmynd/Bakkafrost

Fær­eyska lax­eld­is­fyr­ir­tækið Bakkafrost skilaði á fyrsta á árs­fjórðungi 405 millj­ón­um danskra króna hagnaði eft­ir skatt, jafn­v­irði 7,6 millj­örðum ís­lenskra króna. Rekstr­arniðurstaða eft­ir skatt á sama tíma­bili í fyrra nam 408 millj­ón­um danskra króna, að því er fram kem­ur í um­fjöll­un Kringvarpi Fær­eyja.

Sam­stæða Bakkafrosts slátraði 17.500 tonn­um af laxi úr kví­um í Fær­eyj­um og 4.000 tonn í Skotlandi á fyrstu þrem­ur mánuðum árs­ins 2022 og hef­ur lítið verið um laxal­ús á tíma­bil­inu og fá til­felli, að sögn Reg­ins Jac­ob­sen, for­stjóra Bakkafrosts.

Hann seg­ir verð hafa verið óvenju há og var meðal­verð á laxi á árs­fjórðungn­um 47% hærra en á sama tíma­bili í fyrra. Reg­in seg­ir verðhækk­an­ir megi rekja til auk­inn­ar eft­ir­spurn­ar, en fram­boð hef­ur ekki auk­ist milli ára.

Áform eru um að koma fram­leiðslu Bakkafrosts í 100 þúsund tonn á árs­grund­velli í Fær­eyj­um árið 2026. Eigi það að ganga eft­ir er nauðsyn­legt að koma upp stærri og fleiri seiðaeld­is­stöðvum á landi, seg­ir Reg­in sem bend­ir á að stækk­un seiðaeld­is­ins í Glyvra­döl­um og Norðtoft­um gangi sam­kvæmt áætl­un.

mbl.is